Tími til kominn að taka næsta skref
Dora Ads 2
Halldóra Kristín Ágústsdóttir
TMS M Frett 26 (2)
Tryggvi Már
Sæmundsson

Halldóra Kristín Ágústsdóttir hefur starfað við fasteignasölu í Vestmannaeyjum frá árinu 2021 og byggt sér upp sterka stöðu á markaðnum á þeim tíma. Nú stendur hún á tímamótum í ferlinum og hefur ákveðið að fara sjálfstætt með eigin fasteignasölu undir nafninu Eyjaeignir. 

Nafnið lá beinast við 

Að sögn Halldóru lá nafnið beinast við. „Ég var búin að fara marga hringi með nafn, en frá því ég byrjaði hef ég verið með heimasíðu með eignum sem ég er að selja í Eyjum og slóðin á henni er eyjaeignir.is, svo það lá beinast við að halda mig við það nafn.“ 

Halldóra opnaði skrifstofu í Vestmannaeyjum 1. nóvember 2021, þá í samstarfi við Fasteignasöluna Bæ, þar sem hún var í starfsnámi. „Ári seinna fylgdi ég öðrum eiganda Bæ þegar hann stofnaði fasteignasöluna Hús á Selfossi og hef síðastliðin fjögur ár átt í farsælu samstarfi við þau,“ segir hún. 

Mikil reynsla að baki 

Að hennar sögn hefur samstarfið verið afar dýrmætt. „Það hefur verið mjög gott fyrir mig að geta leitað til þeirra, en núna finnst mér tími til kominn að taka næsta skref og fara sjálfstætt. Ég hef öðlast mikla reynslu á þessum árum, hef alltaf séð um alla bakvinnslu sjálf og þetta liggur því nokkuð beint við.“ 

Halldóra segir fasteignamarkaðinn í Vestmannaeyjum hafa verið virkan síðustu ár. „Það hefur verið nokkuð mikil hreyfing hér í Eyjum frá því ég byrjaði. Auðvitað koma rólegri tímabil inn á milli, en aldrei þetta frost sem virðist vera á höfuðborgarsvæðinu þessa dagana. Húsnæðisverð hefur verið að hækka í Vestmannaeyjum og mikið byggt.“ 

Með Eyjaeignum hyggst hún halda áfram á sömu braut og áður, með áherslu á persónulega þjónustu og markvissa kynningu eigna. 

„Ég mun áfram veita vandaða og persónulega þjónustu og er dugleg að nota samfélagsmiðla í markaðssetningu. Ég tel það hjálpa mikið við auglýsingu og sölu eigna,“ segir Halldóra og bætir við að hún sé afar þakklát öllum þeim sem hafa treyst henni fyrir viðskiptum sínum. 

Hún bendir jafnframt á að vefsíðan hennar, eyjaeignir.is, hafi nýlega verið endurbætt. „Hún er nú mun notendavænni og betur uppsett fyrir bæði kaupendur og seljendur.“ 

Spennandi tímar framundan 

Spurð um horfurnar framundan segir Halldóra að spennandi tímar séu í vændum.  „Árið fór vel af stað eftir rólegan desember og á næstu vikum förum við að kynna Áshamar 77, sem er glæsileg lyftublokk með bílakjallara í vesturbænum. SA Smíðar sjá um framkvæmdir og fólk er þegar byrjað að taka frá íbúðir og ég finn fyrir miklum áhuga.“ 

Hún nefnir einnig stærri framtíðaráform í Vestmannaeyjum. „Áform um baðlón og könnun á fýsileika ganga á milli lands og Eyja eru líka virkilega spennandi og ef þetta verður að veruleika verður það að mínu mati mikil lyftistöng fyrir samfélagið í Eyjum.“ 

Nýjustu fréttir

Tími til kominn að taka næsta skref
Ákvarðanir fyrir framtíðarkynslóðir
Í dag eru 75 ár frá Glitfaxaslysinu
Hárígræðslur í Tyrklandi 
Húsið of hátt – skipulagi breytt eftir á og nágrannar ósáttir
Elliði fyrir leikinn gegn Dönum
Spáð í spilin fyrir stórleikinn í kvöld á EM
Tíðarandi liðinna ára í myndum í Sagnheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.