Fyrirliði ÍBV í kvennaknattspyrnunni síðustu ár, Þórhildur Ólafsdóttir, er gengin í raðir Þórs/KA. Hún skrifaði undir tveggja ára samning hjá Akureyrarliðinu í síðustu viku en Þórhildur var talsvert mikið frá vegna meiðsla síðasta sumar. Hún náði þó að leika 13 leiki og skora í þeim eitt mark en Þórhildur meiddist einmitt í heimaleik gegn Þór/KA. Alls hefur Þórhildur leikið 62 leiki fyrir ÍBV og skorað í þeim 34 mörk en þessi sókndjarfi miðjumaður hefur verið leiðtogi Eyjaliðsins og brotthvarf hennar mikið áfall fyrir ÍBV.