Sunnudaginn 4. mars er Æskulýðsdagur Þjóðkirkjunnar haldinn hátíðlegur. Í ár verður af því tilefni, haldin poppmessu í Landakirkju þar sem aðeins verða leikin lög með stærstu hljómsveit veraldarinnar, U2. Leikhúsbandið sér um flutning ásamt því að Birkir Högnason, Sísí Ástþórsdóttir og Jórunn Lilja Jónasdóttir ljá lögunum raddir sínar.