Bæði liðin frá Vestmannaeyjum sem tóku þátt í Íslandsmótinu í Futsal eru komin í 8 liða úrslit Íslandsmótsins. Liðin léku saman í riðli en ÍBV vann alla sína leiki. Hins vegar gekk keppni í riðlinum ekki vel, þrjú af fimm liðum drógu sig úr keppni og eftir stóðu bæði KFS og ÍBV sem komust þar með í úrslit keppninnar. Úrslitakeppnin fer fram nú um helgina.