Tvö kynferðisafbrot til rannsóknar

Einn gisti fangageymslu eftir nóttina vegna ölvunar og óspekta í Herjólfsdal og fjórar líkamsárásir voru tilkynntar til lögreglu í gærkvöldi og nótt. Alvarlegasta árásin var tilkynnt til lögreglu um kvöldmatarleytið í gær þegar verið var að flytja mann á landspítala vegna innvortis blæðinga. Árásarþoli vildi ekki segja til árásarmannsins en eftirgrennslan lögreglu leiddi til þess að árásarmaðurinn fannst og var færður til skýrslutöku þar sem hann viðukenndi líkamsárásina. Í öðru máli veittist maður að kærustu sinni með höggum og spörkum. Hans var leitað en fannst ekki. Hinar líkamsárásirnar voru minniháttar og eru til rannsóknar.

Tvö mál eru til rannsóknar hjá lögreglu þar sem grunur er um kynferðisbrot eftir nóttina. Málin eru í rannsókn. Kona leitaði auk þess aðstoðar lögreglu vegna kynferðisbrots sem hún varð fyrir árið 2017 á höfuðborgarsvæðinu. Konan hyggst leggja fram kæru hjá lögreglunni í Reykjavík.

Fíkniefnamál sem komu upp hjá lögreglunni á þessari hátíð urðu 35 talsins og er um færri mál að ræða en síðustu ár. Grunur er um sölu í tveimur af þessum málum.

Sextán umferðarlagabrot voru kærð um helgina. Sex ökumenn voru kærðir fyrir ölvun við akstur og akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Einn þeirra var ölvaður á hesti í Vestmannaeyjabæ. Önnur mál voru vegna aksturs án bílbelta, ökumaður að tala í farsíma án handfrjáls búnaðar, ökutækjum lagt ólöglega og of margir farþegar fluttir en ökutæki er skráð fyrir.

Síðdegis í gær var tekin ákvörðun um að opna íþróttahúsið þar sem eitthvað af tjöldum voru farin að losna eftir að bætt hafði í vind og einnig byrjað að rigna. Um 400 manns nýttu sér þessa þjónustu Vestmannaeyjabæjar að sofa í húsinu.

Gestir þjóðhátíðar eru nú farnir að streyma aftur til síns heima. Herjólfur fór sína fyrstu ferð kl. 02:00 í nótt og mun skipið fara ellefu ferðir í dag og fram á nótt. Fyrsta ferð er svo aftur kl. 06:00 í fyrramálið. Einnig er loftbrú á Bakkaflugvöll og með flugfélaginu Erni sem fer 16 ferðir. Áætlað er að 600 til 700 manns fari með flugi í dag frá Eyjum. Ferðalangar eru hvattir til að fara varlega í umferðinni á leiðinni til síns heima og vera vissir um að vera í góðu ástandi þegar þeir hefja akstur.

Samráðsfundi með viðbragðsaðilum á þjóðhátíð 2018 var að ljúka og talið er að gestir hafi verið 14.000 til 15.000 talsins. Það var samdóma álit viðbragðsaðila að þrátt fyrir nokkurn vind á síðasta degi hafi gengið vel að aðstoða gesti og almennt hafi skipulag gengið vel.

Nýjustu fréttir

Nemendum boðið á sundnámskeið
Dýpkun strandar á veðri og ölduhæð
Eyjafiskur í mikilli sókn vestanhafs
Segja forsendur útboðs heilsuræktar hafa breyst verulega
ÍBV tekur á móti ÍR
Óvenjulegar eignfærslur og tafir á afhendingu gagna
Opið hús hjá Krabbavörn
Fermingar á næsta leyti

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.