Týndi Vestmannaeyjaþátturinn kominn í leitirnar - myndband

Í kringum eldgosið á Heimaey fór hópur tónlistarmanna og fólks frá Eyjum í myndver Ríkissjónvarpsins og tók um tvo þætti þar sem flutt var tónlist frá Eyjum. Árni Johnsen var umsjónarmaður þáttanna sem þóttu hinir skemmtilegustu. Fyrri þátturinn var endursýndur um 1980 og má finna á veraldarvefnum en sá síðar hefur ekki fundist fyrr en nú.
„Hef í tuttugu ár reynt að hafa upp á seinni sjónvarpsþættinum sem var gerður í sjónvarpinu í gosinu með músíköntum frá Eyjum. Búinn að fara tvisvar upp í sjónvarp og sent Árna Johnsen líka en hann var skrifaður fyrir þáttunum en ekkert fannst.Það var ekki búið að finna upp vídeotæki á þessum tíma svo enginn átti seinni þáttinn en fyrri þátturinn var endursýndur um 1980 og þá átti fólk orðið vídeotæki og margir tóku þáttinn upp og hann er aðgengilegur á Youtube,“ segir Einar Hallgrímsson á facebook síðu sinni. „Svo skeður það í sumar að það er sýndur þáttur um frægan eyjamann og í honum bregður fyrir atriði sem ég kannast við sem hluta af seinni þættinum.Kannski var þátturinn ekki týndur heldur bara í láni úti í bæ.Nú fékk ég Páll Magnússon til að fara á stúfana jú hann þekkir allt og alla í þessum bransa.Viti menn án þess að ég skýri þetta frekar út mér var sendur þátturinn og ég fékk Andra Hugo til að skella honum inn á Youtube.Þarna er fullt af fólki sem fallið er frá og aðrir sprelllifandi. Njótið vel,“ sagði Einar Hallgrímsson að lokum.

Þennan bráðskemmtilega þátt má sjá í spilaranum hér að ofan.

Nýjustu fréttir

Tómas Bent og félagar í Hearts aftur á sigurbraut
ÍBV vann Suðurlandsslaginn
Öflug barátta og samstaða skipar öndvegi í framtíð Eyjanna
Engin börn í vistun utan Vestmannaeyja
Grípa þarf til aukasundkennslu eftir langvarandi lokun
Suðurlandsslagur í Eyjum
Herjólfur til Landeyjahafnar seinni partinn
Sigurjón og Auðunn jafnir efstir á Skákþingi Vestmannaeyja 2026
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.