�??Aðalskipulagið er til næstu 20 ára og því mikilvægt að reyna að horfa fram í tímann og hugsa um þau tækifæri sem til staðar eru og ekki síður hugsa lausnamiðað varðandi þær hindranir sem við gætum staðið í frammi fyrir,�?? segir Margrét Rós Ingólfsdóttir formaður skipulagsráðs. Hún er í vinnuhópi fyrir hönd bæjarins og með henni eru Stefán �?skar Jónasson aðalmaður í skipulagsráði, Páll Marvin Jónsson formaður bæjarráðs, �?lafur �?ór Snorrason framkvæmdastjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs og Sigurður Smári Benónýsson skipulagsfulltrúi.
�??Nú erum við stödd á þeim stað í ferlinu að það er verið að kynna tillögu á vinnslustigi. �?að eru líklega um 50 stofnanir, samtök o.fl. sem fá tillöguna til umsagnar auk þess sem haldnir eru fundir með hagsmunaðilum og íbúafundir. �?á koma vonandi athugasemdir og ábendingar frá bæjarbúum. Stefnt er að því að nýtt aðalskipulag verði staðfest í lok árs 2017 gangi allt upp.�??
Margrét Rós sagði að í tillögunni séu settar fram nokkur atriði til þess að skapa umræðu og fá viðbrögð frá bæjarbúum. Má þar nefna nýtt athafnasvæði við flugvöllinn og að grafa út hraunið.
�??�?á eru uppi tillögur um að þétta byggð, t.d á malarvellinum við Löngulág og við Safnahúsið, einnig ný íbúðasvæði við Hraunhamar og Suðurgerði. Tillaga er um nýtt landbúnaðarsvæði norðaustur af flugvellinum, þar sem áður var borað eftir heitu vatni og ný afmörkun efnistökusvæða er við Skansinn og í Viðlagafjöru.�??
Sérstakur rammahluti um ferðaþjónustu er partur af skipulaginu. �??Í þeim hluta er lögð áhersla á að greina sérstöðu, styrkleika og staðaranda. Reynum við að horfa til þess að fjölgun gesta feli í sér tækifæri þrátt fyrir álag á innviði og hvernig við verðum sem best í stakk búin til að takast á við aukinn fjölda.
�?etta eru fá atriði sem ég tek hér út en skipulagið er ansi yfirgripsmikið og ég hlakka til að taka umræðu um einstök atriði þess við áhugasama,�?? sagði Margrét Rós.