Undirbúningur Goslokahátíðarinnar er vel á veg kominn. Að þessu sinni koma Birgir Nielsen, Kristín Jóhannsdóttir og Margrét Rós Ingólfsdóttir að undirbúningi hátíðarinnar, sem í ár ber upp á 5. – 8. júlí. Nú þegar er dagskráin farin að taka á sig mynd. Hátíðin hefst strax á fimmtudeginum með opnun á listasýningum. Margar listasýningar verða þessa helgina. Samsýning vestmannaeyskra ljósmyndara, Jón Óskar, Gerður Sigurðar, hönnunarsýning og fl.