Uppstilling hjá Sjálfstæðisflokknum
Í gær rann út framboðsfrestur til röðunar fyrir Sjálfstæðisflokk Vestmannaeyja. Sjö gáfu gáfu kost á sér í Röðun, en frambjóðendur þurfta að vera tíu að lágmarki, skv. samþykkt aðalfundar Fullltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Vestamannaeyjum. �?að verður því farið í uppstillingu.
�?lafur Elíasson sagði í samtali við Eyjafrétta að, �??Á fundi fulltrúaráðs sjálfstæðisfél. í Vestm. var samþykkt sl. mánudag að röðun færi fram ef 10 eða fleirri gæfu kost á sér í framboð. Sá fjöldi barst ekki, en sjö framboð bárust og hefur Kjörnefnd því hafið vinnu við uppstillingu eins og samþykktin hvað á um.�??
Fyrir þá sem ekki vita hvað uppstilling er, þá er það þegar Kjördæmisráð og fulltrúaráð geta ákveðið að kjósa uppstillingarnefnd sem hafi það hlutverk að gera tillögu um skipan framboðslista flokksins við alþingis- eða sveitarstjórnakosningar. Slík ákvörðun þarf að hljóta samþykki 2/3 hluta fundarmanna og gildir einungis fyrir einn framboðslista í senn. Tillaga uppstillingarnefndar um skipan framboðslista skal lögð fyrir til afgreiðslu á fundi kjördæmiseða fulltrúaráðs. Heimilt er að ákveða að bæði aðal- og varamenn taki þátt í atkvæðagreiðslu um tillöguna, en þá skal ákvörðun þar um tekin um leið og ákvörðun skv. 1. mgr. þessarar greinar er tekin og með sama hlutfalli atkvæða og gildistíma og þar greinir. Einfaldur meirihluti atkvæða nægir til að samþykkja listann. Miðstjórn setur samræmdar framkvæmdareglur um uppstillingu framboðslista á vegum flokksins.
Sú kjörnefnd sem kosin var til að annast framkvæmd röðunarinnar fær nú það hlutverk að stilla upp á lista Sjálfstæðisflokksins. Nefndina skipa samkvæmt samþykkt fulltrúaráðsfundar: �?lafur Elísson, formaður, Arnar Sigurmundsson, Bragi Magnússon, Elsa Valgeirsdóttir, Halla Svavarsdóttir, Ingólfur Jóhannesson og Silja Rós Guðjónsdóttir.

Nýjustu fréttir

Sigurjón vann einvígið og tryggði sér titilinn
Meinfýsni
Jafnlaunavottun World Class réð úrslitum
Alla Stella keypti gamalt hús og dánarbú fylgdi með
Allt undir hjá ÍBV gegn KA í dag
ÍBV tapaði gegn Val í lokaleik Olís deildarinnar
Enginn kemst áfram í lífinu á ljóðum einum saman
Hugmyndin að húsinu fæddist eftir samtal við vini
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.