�?rjú mál voru tekin fyrir á fundi aganefndar HSÍ sl. miðvikudag en þar áttu einungis leikmenn meistaraflokks karla í hlut.
Eitt málanna sneri að leikmanni ÍBV U, Loga Snædal Jónssyni, en hann fékk útilokun með skýrslu vegna ofsafenginnar framkomu í leik ÍBV U og HK sem fram fór á dögunum. Niðurstaða aganefndar er sú að Logi verði úrskurðaður í tímabundið bann til 1. janúar 2018.