Í Morgunblaðinu í dag er greint frá svari Jóns Bjarnasonar, sjávarútvegsráðherra við fyrirspurn Einars K. Guðfinssonar á Alþingi varðandi hækkun veiðigjalds. Heildargreiðslur veiðigjaldsins fiskveiðiárið 2012-2013 er 9,1 milljarða króna. Í svari ráðherra kemur fram að útgerðir í Vestmannaeyjum greiði mest eða ríflega 421 milljón króna. Veiðigjaldið hækkar úr 13,3% í 27% á milli fiskveiðiára. Veiðigjaldið á síðasta fiskveiðiári var rúmir þrír milljarðar.