Veðrið það sem af er þessu ári hefur verið blítt og létt með nokkrum rokum þess á milli, allt að 50 metrum. Um helgina fannst manni sem vorið væri á næsta leiti, einstök blíða miðað við árstíma og fallegt. Halldór Benedikt fór á Heimaklett í gær og myndaði ægifagurt útsýnið þaðan. Myndbandið sem hér fylgir er unnið af honum.