ÍBV tapaði fyrir Val í dag í undanúrslitum Olísdeildar kvenna en liðin áttust við á heimavelli Hlíðarendaliðsins í fyrsta leik undanúrslitanna. Lokatölur urðu 21:17 en staðan í hálfleik var 9:7. ÍBV byrjaði mjög vel í leiknum, komust tveimur mörkum yfir strax í byrjun en í stöðunni 3:5 hrökk allt í baklás. Sóknarleikur liðsins varð nánast að engu en ÍBV skoraði aðeins tvö mörk á 21 mínútu í seinni hálfleik en bæði þessi mörk komu af vítalínunni. Liðið hafði skorað fimm mörk á fyrstu níu mínútum leiksins. Valsliðið þurfti ekki að sýna neinn glansleik til að komast yfir en leikmenn ÍBV fóru afskaplega illa með dauðafæri, auk þess að sóknarleikurinn í heild sinni var mjög slakur í fyrri hálfleik.
Ekki er hægt að segja að byrjunin á seinni hálfleiknum hafi verið betri því liðið skoraði ekki mark á fyrstu níu mínútunum en á sama tíma skoruðu heimastúlkur fimm mörk og komust því í 14:7. Eftir það voru úrslitin ráðin, varamenn beggja liða fengu tækifæri á lokamínútunum.
Liðin mætast á nýjan leik á sunnudaginn en leikur liðanna hefst klukkan 16:00.
Mörk ÍBV: Vera Lopes 8/4, Ester �?skarsdóttir 3, Telma Amado 2, Sandra Dís Sigurðardóttir 2, Díana Dögg Magnúsdóttir 1, Kristrún Hlynsdóttir 1.
Varin skot: Dröfn Hararldsdóttir 12/1.