Vandamál varðandi bjórdrykkju
Vandamál: Drykkjan veitir enga ánægju bjórinn er óvenjulega bragðlaus, fölur og tær.
Orsök: Glasið er tómt.
Viðbrögð: Fáðu einhvern til að kaupa annan bjór handa þér.
Vandamál: Drykkjan veitir enga ánægju, bjórinn er óvenjulega bragðlaus, fremri hlutinn á þér er blautur.
Orsök: Munnurinn hefur ekki verið opinn meðan þú varst að drekka eða glasið hefur verið sett upp við rangan andlitshluta.
Viðbrögð: Kauptu annan bjór og æfðu þig fyrir framan spegil. Drekktu eins marga og þörf er á til að byggja upp fullkomna tækni.
Vandamál: Fætur blautir og kaldir
Orsök: Glasinu hefur verið haldið á hvolfi
Viðbrögð: Snúðu glasinu við þannig að “opni” endinn snúi upp.
Vandamál: Fætur blautir og heitir
Orsök: Slæm stjórn á þvagblöðrunni
Viðbrögð: Skiptu um sokka.
Vandamál: Gólfið er þokukennt
Orsök: �?ú ert að horfa í gegnum botninn á tómu glasi
Viðbrögð: Fáðu einhvern til að kaupa annan bjór handa þér.
Vandamál: Gólfið sveiflast
Orsök: Of mikil ókyrrð í loftinu, sennilega vegna úrslita sem hafa orðið í einhverju spili á barnum
Viðbrögð: Fáðu lánað kústskaft til að styðjast við.
Vandamál: Gólfið hreyfist
Orsök: �?að er verið að bera þig út
Viðbrögð: Reyndu að komast að því hvort að það sé verið að fara með þig á annan bar.
Vandamál: Veggurinn á móti þér er þakinn loftklæðningu og ljósaperum
Orsök: �?ú hefur dottið aftur fyrir þig
Viðbrögð: Ef glasið þitt er fullt og enginn stendur á hendinni á þér, vertu þá bara ennþá á gólfinu og haltu áfram að drekka. Ef ekki, fáðu þá einhvern til að hjálpa þér að standa upp og haltu þér vel í barborðið.
Vandamál: Allt er orðið dimmt, munnurinn á þér er fullur af sígarettustubbum
Orsök: �?ú hefur dottið fram fyrir þig.
Viðbrögð: Sjá fyrir ofan
Vandamál: Allt er orðið dimmt
Orsök: �?að er búið að loka barnum
Viðbrögð: Bankaðu og athugaðu hvort einhver sé enn að afgreiða á barnum.
Vandamál: �?ú vaknar og finnur að rúmið þitt er kalt, hart og blautt; þú sérð ekkert inni í svefnherberginu.
Orsök: �?ú hefur sofnað í göturæsinu.
Viðbrögð: Kíktu á klukkuna til að gá hvort að það sé búið að opna barina. Ef ekki, reyndu þá að sofa aðeins lengur

Nýjustu fréttir

Gular viðvaranir allvíða – Suðaustanhríð á Suðurlandi
Andri verður ekkert með í einvíginu gegn KA
Fékk plássið þegar auminginn úr Reykjavík gafst upp
Minnisvarði um botnlausa sýndarþörf Eyjamanna brátt vígður
Listaverk Ólafs Elíassonar komið á sinn stað
Hingað og þangað um Heimaey
Ágúst Þór stýrir brekkusöngnum
Skákmeistarinn krýndur á sunnudag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.