Í morgun hófust framkvæmdir við lagningu nýrrar vatnsleiðslu til Vestmannaeyja. Flutningaskipið Henry P. Lading er notað til að leggja leiðsluna en skipið liggur nú við ankeri um 300 metra frá landi. Hafist var handa við að koma leiðslunni í land í Bakkafjöru í morgunsárið og náði leiðslan landi um ellefu fyrir hádegi. Þegar búið verður að ganga frá leiðslunni í landi verður haldið af stað til Eyja og er áætlað að lagningu leiðslunnar verði lokið í nótt eða í fyrramálið.