Þær Védís Guðmundsdóttir og Herdís Gunnarsdóttir munu halda þverflaututónleika í kvöld miðvikudaginn, 16. maí, í Safnaðarheimili Landakirkju en tónleikarnir hefjast klukkan 19:30. Á tónleikunum munu þær flytja klassískt efni, bæði saman og í sín hvoru lagi, auk þess sem þær taka eitt lag með Ástu Maríu Harðardóttur en um undirleik sér Guðmundur H. Guðjónsson, faðir Védísar. Í síðari hluta tónleikanna koma þær svo m.a. fram með flautusveit Tónlistarskólans.