Bæjarbúar hafa undanfarið fengið að kynnst því hvernig það er að keyra í hálku. M.a. var illfært upp Strembugötuna í gær en Guðmundur Þ. B. Ólafsson, framkvæmdastjóri Þjónustumiðstöðvar Vestmannaeyjabæjar vill koma því á framfæri að víða í bænum eru gular saltkistur sem vegfarendur eru hvattir til að nota þegar ástæða er til.