Vegna umræðu um breytingar á hitaveitu í Vestmannaeyjum

Fram kemur á heimasíðu hitaveitunnar að nokkur umræða hefur verið um hækkun gjaldskrár og breytt rekstrarfyrirkomulag á hitaveitunni í Vestmannaeyjum og áhrif þess á notendur. Eins og fram hefur komið var nauðsynlegt að gera breytingarnar til að bregðast við erfiðleikum í rekstri hitaveitunnar í Eyjum vegna raunhækkunar á raforkukostnaði, bilana á sæstreng Landsnets og skerðinga í raforkuframleiðslu með tilheyrandi kostnaðarauka vegna olíukaupa. Markmiðið er að tryggja rekstrargrundvöll hitaveitunnar og reka áfram góða hitaveitu í Vestmanneyjum. Með breytingunni er nýja orkunýtna varmadælustöðin farin að stýra framrásarhita inná bæinn, líkt og hún var hönnuð til að gera, sem gerir heitavatnsframleiðsluna bæði hagkvæmari og umhverfisvænni. Þannig verður heitavatnsframleiðsla minna háð rafmagni og olíu en áður. Breytingin hefur þau áhrif að framrásarhitastigið verður eitthvað lægra þegar álag á hitaveituna er mikið.

Eðli málsins samkvæmt eru sumir notendur að finna fyrir áhrifum af breytingunni og af umræðunni að dæma er ljóst að sumir notendur finna meira fyrir þessu en aðrir. Við greiningu á hitastigi til notenda síðustu sjö daga kemur í ljós að þrátt fyrir breytinguna á framrásarhitanum eru notendur almennt að fá til sín nægilega heitt vatn til að halda góðum hita á húsum og neysluvatni. Eftir standa einhverjir notkunarstaðir sem ástæða er til að kanna betur og verður það gert á næstu dögum.

Á þessum árstíma, þegar kólnar í veðri, er algengt að notendur hitaveitna verði varir við að tíma taki að ná hita í húsin og ofnlokar eða annar búnaður standi á sér eftir litla notkun yfir sumarið. Einnig getur verið að stilla þurfi forhitara þannig að þeir skili nægjanlega heitu neysluvatni í blöndunartækin. HS Veitur skila heitu vatni að snjallmæli í hitaveitugrind viðskiptavina og á inntaki er síubúnaður sem getur stíflast og þurft að hreinsa af fagmanni. Allur búnaður fyrir aftan snjallmæli er í eigu húseigenda og virkni hans hefur áhrif á bæði hitastig ofnakerfis og neysluvatns. Ef sá búnaður af einhverjum ástæðum virkar ekki sem skyldi skilar hann ekki nægjanlega vel því hitastigi sem hitaveitan skilar inn í húsið.

Síðustu daga hafa HS Veitur verið í sambandi við flesta pípulagnameistara í Vestmannaeyjum til að meta stöðuna og hvetjum við þá viðskiptavini sem telja að vatnið sé ekki nægjanlega heitt til að hafa samband við pípulagnameistara til að yfirfara húskerfin. Höfum við óskað eftir því að þeir veiti okkur upplýsingar ef eitthvað er að þeim búnaði sem er í eigu HS Veitna og munum við kosta úrbætur á honum og hreinsun á síu við inntak sé þess þörf.

Við munum áfram fylgjast með stöðunni og hægt er að hafa samband við þjónustuver okkar í síma 422 5200 og í gegn um netfangið hsveitur@hsveitur.is.

Nýjustu fréttir

Hörku skákmót hjá TV á skírdag
Tjaldurinn meðal vorboða í Eyjum
Bæta á aðgengi og fjölga bílastæðum við Kirkjugerði
ÍBV semur við serbneskan framherja
Metár og hagnaður langt yfir áætlun
Jón Óli á sínu þriðja ári með konurnar 
Elliði Snær og Elmar í eldlínunni í Þýskalandi
Páskaeggjaleit Sjálfstæðisflokksins

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.