Ríkisstjórnin ætlar að taka veiðigjöld í sjávarútvegi til endurskoðunar á árinu með það að markmiði að lækka gjöldin á lítil og meðalstór sjávarútvegsfyrirtæki og afkomutengja þau.
www.mbl.is greindi frá.
�??Við erum að horfa til litlu og meðalstóru fyrirtækjanna sem eru ekki að ráða við þá miklu hækkun sem varð á veiðigjaldinu 1. september á síðasta ári,�?? sagði Lilja Rafney Magnúsdóttir, formaður atvinnuveganefndar, í samtali við Morgunblaðið.
�??Sú hækkun var mjög mikil, alveg frá 200 prósentum og yfir 300 prósenta hækkun hjá sumum. �?að er farin af stað vinna í ráðuneytinu við að skoða þetta. Sú vinna á að ganga hratt fyrir sig.�??
Núverandi lög sem veiðigjöldin byggjast á í dag renna út í lok þessa fiskveiðiárs og var kveðið á um breytingar á veiðigjöldunum í stjórnarsáttmála Sjálfstæðisflokks, Vinstri-grænna og Framsóknarflokksins þannig að gjöldin yrðu afkomutengd. Lilja Rafney segir þessar breytingar vel rúmast innan þess orðalags sáttmálans.
�??Við leggjum mikla áherslu á að þessi vinna gangi hratt fyrir sig og við getum skilað einhverju frá okkur fyrir vorið í þessum efnum. Atvinnuveganefnd mun ræða þessi mál þegar þing kemur aftur saman. �?ingið á líka eftir að skipa pólitískt í veiðigjaldanefnd og það verður þá sett í gang,�?? segir Lilja Rafney.