Veira, eldgos eða flóðbylgjur  
17. október, 2020
Ari Trausti Guðmundsson

Við glímum sem samfélag við eignatjón, fjártjón og manntjón á ári hverju. Í forgangi er að koma í veg fyrir manntjón. Það hefur orðalítið verið samþykkt sem ein megin manngildishugsjón okkar. Það er líka megin markmið sóttvarnaraðgerða, björgunaraðgerða á sjó og landi, brottflutningsáætlana vegna náttúruvár osfrv. Slík viðbrögð reyna á samheldni, þolinmæði og þrautseigju. Þau eru unnin fyrst í kapp við framvindu ógnarinnar, af öryggi, og greitt úr afleiðingunum samhliða, eftir getu. Svo enn betur þegar um hægist. Fyrirsjáanleiki og langtímaáætlun eru tálsýnir. Viðbrögðin eru ekki unnin samkvæmt kaldrifjuðum útreikningi á “mögulegum heildaráhrifum aðgerðanna til langs tíma á efnahag þjóðarinnar”. Það gengur ekki upp gagnvart þeim sem treysta á aðstoð og björgun. Viðbrögðin eru fjár-, mannafla- og tímafrek vörn við vánni og felast í breytilegri vástjórnun og aðlögun að aðstæðum, ógnarinnar vegna, viku eftir viku á meðan ástandið varir. Eignatjón og fjártjón er glímt við samhliða en er ekki í fyrsta sæti. Reynt að lágmarka og bæta slík tjón eftir því sem unnt er án þess að mannslátum fjölgi þess vegna.

Hugmyndir um önnur gildisviðmið eiga ekki við og munu ekki ná meirihlutafylgi í landinu, þrátt fyrir gagnrýni á aðgerðir og starfshætti heibrigðisþjónustunnar og stjórnvalda. Gildisviðmiðin birtast til dæmis í hugmyndum um að ná hjarðónæmi eða slaka mjög á viðbrögðunum þrátt fyrir að 20-25% íbúa séu í mesta áhættuhópi, algeng og langvinn eftirköst eftir kórónuveikina og þátt fyrir núverandi álag á velferðar- og heilbrigðiskerfin. Hollt er að horfa til spænsku veikinnar 1918-19. Þá bjuggu hér um 92.000 manns, heilbrigðisþjónustan var fámenn og barn síns tíma, veiran skæð, húsakostur misjafn og innviðir veikir. Mörg þúsund manns veiktust, þjáðust og þraukuðu heima fyrir; flestir um 500 manna, sem létust, dóu þar. Allmargir jöfnuðu sig seint eða aldrei. Sjálfboðaliðar reyndu að aðstoða heilbrigðisyfirvöld og stjórnvöld mánuðum saman. Þessu til viðbótar gengu tveir flensufaraldrar yfir með veikindum og mjög líklega mannslátum.

Mér sem starfandi stjórnmálamanni ber að fylgja þeim manngildishugsjónum sem við flest aðhyllumst og fylgjum í verki eins og nú er gert. Get sem vísindamaður sett mig inn t.d. inn í nýja Skaftárelda og séð fyrir mér sömu afstöðu og sömu megin vinnubrögð.

Höfundur er þingmaður VG

 

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
Forsida 5 Tbl EF
5. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
viðburðir
DSC 2106
8. júní 2025
13:00
Golfdagurinn í Eyjum
Tónleikar Kórs Vídalínskirkju í Landakirkju
8. júní 2025
17:00
Tónleikar Kórs Vídalínskirkju
Landakirkja
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.