Boeing 747-400 ERF vöruflutningaþota Cargolux, sem mun fljúga með tvo mjaldra frá sjávardýragarðinum í Changfeng í Kína til Keflavíkurflugvallar, var kynnt í vikunni.Telst hún nú tilbúin fyrir verkefnið eftir að talsverðar breytingar voru gerðar á flugvélinni. Hefur meðal annars verið komið fyrir búnaði sem ætlað er að tryggja réttan loftþrýsting og rétt hitastig fyrir flug mjaldranna, að því er fram kemur í svari Cargolux við fyrirspurn Morgunblaðsins.
Kerin sem flytja mjaldrana tvo eru sérstaklega hönnuð fyrir flutninginn og segist Cargolux vera í nánu samstarfi við hönnuði keranna til þess að tryggja öruggan flutning dýranna. Einnig er starfrækt virkt samráð við hvalasérfræðinga og sérfræðinga á sviði dýralækninga „þar sem líkamleg og andleg vellíðan hvalanna er mikilvægasta viðfangsefnið“.
Gert er ráð fyrir að flogið verði um miðjan apríl frá Kína. Þá er framkvæmd verkefnisins sögð á áætlun og að vel gangi að undirbúa mjaldrana fyrir ferðina, að því er fram kemur í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.