Á laugardaginn var Verslunarmannaballið haldið með pompi og prakt í Höllinni en ballið er orðið einn af föstu punktum haustsins í skemmtanalífi Eyjamanna. Einsi Kaldi sá um að matinn sem var mjög vel heppnaður, en um 130 manns voru í mat sem er heldur lítið miðað við seinustu ár.
Jarl Sigurgeirsson var veislustjóri kvöldsins og hans fólk úr tónlistarskólanum voru einnig með atriði. Hreimur og Í svörtum fötum sáu svo um að skemmta fólki og héldu fjörinu gangandi fram eftir nóttu.
Myndir: �?skar Pétur Friðriksson