Vél­in til­bú­in fyr­ir fyrsta mjaldra­flugið
Flug­vél­in sem flyt­ur tvo mjaldra frá Kína til Íslands hef­ur verið skreytt af því til­efni. Ljós­mynd/​Car­golux

Boeing 747-400 ERF vöru­flutn­ingaþota Car­golux, sem mun fljúga með tvo mjaldra frá sjáv­ar­dýrag­arðinum í Chang­feng í Kína til Kefla­vík­ur­flug­vall­ar, var kynnt í vik­unni.Telst hún nú til­bú­in fyr­ir verk­efnið eft­ir að tals­verðar breyt­ing­ar voru gerðar á flug­vél­inni. Hef­ur meðal ann­ars verið komið fyr­ir búnaði sem ætlað er að tryggja rétt­an loftþrýst­ing og rétt hita­stig fyr­ir flug mjaldr­anna, að því er fram kem­ur í svari Car­golux við fyr­ir­spurn Morg­un­blaðsins.

Ker­in sem flytja mjaldr­ana tvo eru sér­stak­lega hönnuð fyr­ir flutn­ing­inn og seg­ist Car­golux vera í nánu sam­starfi við hönnuði ker­anna til þess að tryggja ör­ugg­an flutn­ing dýr­anna. Einnig er starf­rækt virkt sam­ráð við hvala­sér­fræðinga og sér­fræðinga á sviði dýra­lækn­inga „þar sem lík­am­leg og and­leg vellíðan hval­anna er mik­il­væg­asta viðfangs­efnið“.

Gert er ráð fyr­ir að flogið verði um miðjan apríl frá Kína. Þá er fram­kvæmd verk­efn­is­ins sögð á áætl­un og að vel gangi að und­ir­búa mjaldr­ana fyr­ir ferðina, að því er fram kem­ur í um­fjöll­un um mál þetta í Morg­un­blaðinu í dag.

Nýjustu fréttir

Suðurlandsslagur í Eyjum
Kröfu um gæsluvarðhald hafnað
„60 milljónir eru þeim ofviða“
Vestmannaeyjar í fókus hjá bresku sjávarútvegsblaði
Eyjamaðurinn: Elís Þór
Miðflokkurinn býður fram í Eyjum
Kyrrðarbæn í dag
Tveir handteknir í tengslum við andlát
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.