LifeLine Health og Vera Lífsgæðasetur hafa hafið samstarf en það var tilkynnt á Facebook síðu Veru lífsgæðaseturs í dag.
LifeLine Health, sem stofnað er af Victori Guðmundsyni ásamt fleirum læknum býður upp á heilsufarsskoðanir og fjölþætta heilsueflingu sem miðar að því að bæta lífsgæði einstaklinga. Í verkefninu mun Vera Lífsgæðasetur koma að fræðslu og praktískum ráðum sem byggja á fjórum grunnstoðum heilsu: næringu, svefni, hreyfingu og andlegri heilsu.
Fyrsti hópurinn sem tekur þátt í verkefninu er hópur starfsfólks Vestmannaeyjabær, en greint var frá því í janúar að Vestmannaeyjabær hefði gert samning við LifeLine Health um heilsufarsskoðanir og heilsueflingu fyrir starfsfólk bæjarins.
Verkefnið fer af stað á næstu dögum og er markmiðið með því að styðja við heilbrigði, vellíðan og forvarnir starfsfólks með faglegri og einstaklingsmiðaðri nálgun.