Verð sjávarafurða lækkar enn frekar

Verð sjávarafurða lækkaði um 2,3% í erlendri mynt í maí frá fyrri mánuði samkvæmt verðvísitölu sjávarafurða sem Hagstofa Íslands birti í morgun og greint er frá í nýjasta fréttabréfi SFS. Þetta er fjórði mánuðurinn í röð sem lækkun á sér stað og hefur tólf mánaða taktur vísitölunnar þar með tekið verulegan viðsnúning á örskömmum tíma, eins og blasir við á myndinni hér fyrir neðan. Þannig hækkaði verð á sjávarafurðum um 9,3% á milli ára í desember en í maí mælist 3,4% lækkun á milli ára.

Þetta kemur heim og saman við erfiðar aðstæður sem skapast hafa vegna COVID-19. Breyting hefur orðið á spurn eftir sjávarafurðum og talsverður þrýstingur hefur verið til verðlækkana. Framvindan er nokkuð misjöfn eftir afurðaflokkum, eins og sjá má á myndinni hér fyrir neðan. Þannig benda verðvísitölur botnfiskafurða til þess að landfrystar afurðir séu þær einu sem hafi haldið sjó á undanförnum mánuðum. Á hinn bóginn hefur verð á öðrum botnfiskafurðum lækkað nokkuð, eins og til að mynda á ferskum botnfiskafurðum sem höfðu hækkað um 12% á milli ára í janúar, mælt í erlendri mynt, en í maí var 12 mánaða taktur þeirra orðinn neikvæður um 2,4%.

Þess má geta að í þessari umfjöllun er stuðst við verðvísitölu sjávarafurða (VS) en ekki verðvísitölu útfluttra sjávarafurða (VÚS) sem Hagstofan heldur einnig utan um. Við fjöllum oftar um þá síðarnefndu (sjá hér), en báðar mæla verðþróun á íslenskum sjávarafurðum, en með ólíkri aðferðafræði og mismunandi gögnum og gefa því mismunandi niðurstöðu. Oftast nær hafa þær þó fylgst ágætlega að, eins og sjá má á myndinni hér fyrir neðan. Nánari umfjöllun um vísitölurnar má sjá á Radarnum.

Nýjustu fréttir

Ófullnægjandi dýpi í Landeyjahöfn – uppfært
Ekki einhugur um milljóna framlag til ÍBV
Loðnuvertíðin hafin í Eyjum
Heiðurshjónin Hjalti og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025
Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.