Vestmannaeyjabær áfrýjar ekki

Á fundi bæjarráðs í hádeginu í dag var ákveðið að áfrýja ekki máli Vestmannaeyjabæjar gegn Landsbankanum. Héraðsdómur Reykjavíkur kvað upp dóm þann 12. desember í máli sem Vestmannaeyjabær, Lífeyrissjóður Vestmannaeyja og Vinnslustöðin hf. höfðuðu gegn Landsbankanum hf. Bankinn var sýknaður af kröfum stefnenda.

Ríkisbankinn hagnast á kostnað stofnfjáreigenda
Niðurstaðamálsins var eftirfarandi:”Niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur í málinu eru vonbrigði, en dómurinn tekur ekki til greina niðurstöðu dómskvaddra matsmanna á raunvirði stofnbréfanna, sem var umtalsvert hærra en það sem bankinn greiddi fyrir hlutina. Þannig hagnaðist ríkisbankinn á kostnað stofnfjáreigenda í Sparisjóði Vestmannaeyja, íbúa í Vestmannaeyjum sem sitja nú eftir með sárt ennið.
Bæjarráð hefur fundað með stefnendum um efni dómsins og mat lögfræðinga á honum, sem telja forsendur ekki vera til staðar fyrir áframhaldandi málarekstri. Ljóst er að áframhaldandi málarekstur yrði kostnaðarsamur fyrir bæjarsjóð án þess að líkur séu á því að æðra dómstig komist að annarri niðurstöðu. Í ljósi framangreinds mun bæjarráð því ekki áfrýja dóminum.
Bæjarráð þakkar Lífeyrissjóði Vestmannaeyja og Vinnslustöðnni hf. fyrir gott samstarf í tengslum við málaferlin.”

Hafa ekki fengið fullt verð fyr­ir stofn­fjár­hluti sína
Málið sner­ist um það hvað mætti telj­ast hæfi­legt end­ur­gjald fyr­ir stofn­fjár­hluti við yf­ir­töku Lands­bank­ans. Vest­manna­eyja­bær, Líf­eyr­is­sjóður Vest­manna­eyja og Vinnslu­stöðin telja að sam­komu­lag sem gert var á sín­um tíma um end­ur­gjaldið hafi verið ósann­gjarnt og að bank­inn hafi auðgast með órétt­mæt­um hætti á kostnað þeirra.

Enn frem­ur telja Vest­manna­eyja­bær, Líf­eyr­is­sjóður Vest­manna­eyja og Vinnslu­stöðin sig ekki hafa fengið fullt verð fyr­ir stofn­fjár­hluti sína í spari­sjóðnum þegar þeir voru yf­ir­tekn­ir af bank­an­um við samruna hans og sjóðsins. Er þar byggt á mis­mun greiðslunn­ar fyr­ir stofn­fjár­hlut­ina og mats dóm­kvaddra mats­manna.

Vest­manna­eyja­bær krafðist þess að Lands­bank­inn greiddi sér tæp­ar 15,4 millj­ón­ir króna auk drátt­ar­vaxta, Líf­eyr­is­sjóður Vest­manna­eyja að bank­inn greiddi sér rúm­ar 21,6 millj­ón­ir auk vaxta og Vinnslu­stöðin fór fram á tæp­ar 7,6 millj­ón­ir.

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.