Vestmannaeyjabær er áfram í fyrsta sæti þegar kemur að þjónustu við barnafjölskyldur og fatlaða

Niðurstöður könnunar Gallup á þjónustu sveitarfélaga fyrir árið 2021 voru kynntar á íbúafundi mánudaginn 21. mars 2022. Eru niðurstöður könnunarinnar jákvæðar varðandi þjónustu Vestmannaeyjabæjar.

Vestmannaeyjabær er efst þeirra 20 stærstu sveitarfélaga landsins þegar spurt er um þjónustu við barnafjölskyldur og fatlaða. Bæjarfélagið er í öðru til þriðja sæti þegar kemur að, þjónustu leikskóla og menningarmálum. Vestmannaeyjabær er jafnframt í fyrsta til öðru sæti þegar spurt er um aðstöðu til íþróttaiðkunar og þjónustu starfsfólks bæjarskrifstofanna. Þátttakendur í könnuninni voru auk þess ánægðir með margt er snýr að umhverfismálum, sem sérstök áhersla var lögð á í þessari könnun. Munu niðurstöðurnar nýtast í lokavinnu við gerð umhverfis- og auðlindastefnu, sem er á lokametrunum.

Óhætt er að fullyrða að þegar á heildina er litið, eru margar jákvæðar niðurstöður í könnuninni. Sorphirðumálin, sem illa hafa komið út undanfarin ár, eru skv. niðurstöðunum á mun betri stað. Það eru alltaf atriði sem betur mega fara og er þessi þjónustukönnun góður leiðarvísir fyrir bæjaryfirvöld að bættri þjónustu við íbúa.

Niðurstöður þjónustukönnunarinnar hér að neðan.

Þjónusta sveitarfélaga 2021 – Vestmannaeyjar

Þjónusta sveitarfélaga 2021 – Umhverfismál

Nýjustu fréttir

Viljum frekar byggja upp en að rífa niður 
Dæluskipið Álfsnes á Bíldudal
Ótrúlegt að 1.200 manns taki þátt í prófkjöri í svona litlu samfélagi 
Lagt til að ráðist verði í könnunarveiðar á humri
Vel heppnaðri loðnuvertíð lokið
Jón Þór leiðir lista Miðflokksins – Sæunn er bæjarstjóraefnið
Fyrri ferð föstudags felld niður
Elliði Snær markahæstur gegn Svíum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.