Vestmannaeyjabær leigði dýpkunarskipið Galilei núna um helgina
Sá almannarómur um að Vestmannaeyjabær hafi leigt dýpkunarskipið Galilei núna um helgina til að hefja dýpkun er sannur. Elliði Vignisson bæjarstjóri staðfesti það.
�??Já það er rétt að Vestmannaeyjabær leigði dýpkunarskipið til að fara til verka á laugardagskvöldið. �?að var gert til að kanna hvort mögulegt væri að flýta fyrir hefðbundinni dýpkun með því að blása sjó af miklu afli (jetta) hólinn sem myndast hafði milli garða. Starfsmenn JDN töldu sig ekki geta hafið verk með góðu móti á annan máta en Vegagerðin greiðir hinsvegar eingöngu fyrir það efni sem er fjarlægt með því að dæla því um borð á skipinu og losa annarsstaðar. Til að höggva á þennan hnút ákváðum við að senda skipið af stað á okkar kostnað.�??
Hvernig tóks til? Mjög vel. Í okkar huga er ekki nokkur vafi um að þetta tókst vel og á innan við hálfum sólarhring var búið að blása nægilega á hólinn til að hægt væri að beita hefðbundnum aðferðum. �?g fékk svo nýjustu mælinguna í hendurnar seint í gær [myndin er hér fyrir neðan] og ljóst að í heildina hefur þetta gengið jafnvel vonum framar. Dýpið milli garða var þó í gærkvöldi ekki nægt til að hefja siglingar Herjólfs þangað. Amk. ekki óháð sjávarföllum. Stefnt er að því að dýpka þar svo fljótt sem verða má niður í 6 metra dýpi en í gær vantaði amk. meter til einn hálfan upp á að slíkri stöðu væri náð. Vandinn sem fyrr er að eftir að haustlægðirnar byrja að dembast yfir þá er erfitt að vinna þarna á dýpkunarskipum. Núna er dýpkuarskipið td. komið í land og fer vart af stað fyrr en í nótt eða á morgun.
Hvað með fasta dælubúnaðinn? Auðvitað er ömurlegt að sjá höfnina lokast núna í tvígang á stuttum tíma vegna dýpis. Ljósi punkturinn er þó sá að þetta er að koma upp á mjög afmörkuðu svæði á milli garða og núna er að fara af stað útboð á dælubúnaði sem stjórnað verður af krana úr landi. �?annig verður dýpkun ekki jafn háð ölduhæð og nú er.
Ertu bjartsýnn á að það ásamt nýrri ferju leysi vandann? �?g er að eðlisfari mjög jákvæður og hef fulla trú á að þetta tvennt sé skref í átt að því að bæta stöðuna. �?g get hinsvegar lofað öllum að þetta leysir hann ekki. �?að verða áfram umtalverð vandamál í ákveðinn tíma á hverju ári. �?annig verður það þar til lausn verður fundin á því hvernig hægt sé að veita skipi skjól á leið inn fyrir núverandi garða og tryggja um leið nægt dýpi. Hin endalega lausn eru svo jarðgöng og persónulega þykir mér eðlilegt að þau séu í stöðugri skoðun.

Nýjustu fréttir

Bræður frá Úkraínu fundu ró í Vestmannaeyjum 
Óskar og Sigurjón margfaldir aflakóngar
Sigurjón bjargaði fjórum áhöfnum
Leik ÍBV og FH í Bestu deildinni flýtt
Matthías Harðarson með tónleika í Hallgrímskirkju
Tæplega níræður Eyjamaður með 13 rétta
Samið við Jan De Nul um dýpkun Landeyjahafnar
Gul viðvörun: Suðaustan hríð
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.