Byrjað var að ryðja snjó af götum bæjarins fyrir kl. 6 í morgun og eru öll tæki Þjónustumiðstöðvar Vestmannaeyja úti sem og tæki frá Íslenska gámafélaginu og Gröfuþjónustu Brinks. Í tilkynningu frá Þjónustumiðstöðinni segir að „þeir, sem vilja vita hvenær rutt verður hjá „mér“ þá getum við ekki svarað því frekar en aðrir, þar sem við verðum að vinna okkur úr stofnbrautum og svo inn í hverfin.“