Fimmti þáttur sýningarraðarinnar “Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma” verður sýndur laugardaginn 14. mars kl. 11.00–12.00 í Sagnheimum.
Eins og fyrri þáttum er mest fjallað um tímabilið 1950-1960, en einnig bregður fyrir eldri og nýrri klippum.
Meðal þess sem kemur fyrir í þessum þætti eru byggingaframkvæmdir, 17. júní hátiðarhöld, Hásteinshlaupið, skrúðganga upp Kirkjuveg, útimessa við Landakirkju, uppsetning á útsýnisskífunni á toppi Helgafells og einstakar myndir af austurbænum um 1955.
Á undan verður sýndur sex mínútna kafli frá heimsókn tveggja þýskra farþegarskipa til Íslands í júlí 1939 einum og hálfum máuði áður en síðari heimsstyrjöldin hófst.
Vestmannaeyjar voru fyrsti viðkomustaður og mjög áhugaverðar myndir frá Eyjum. Það sem gerir þessa mynd merklegri er að þetta er í fyrsta skipti sem litmyndir voru teknar á Íslandi.
Ekki er síður merkilegt að sú sem tók mydirnar var Eva Braun, ástkona og síðar eiginkona Adolfs Hitlers, en samband þeirra var óþekkt á þessum tíma og ferðist hún undir eigin nafni með skipinu.
Líkt og á fyrri sýningum mun Arnar Sigurmundsson greina nánar frá myndefninu og leiða umræður. Gunnar Júlíusson, grafískur hönnuður, yfirfór myndefnið og sá um úrvinnslu verkefnisins, sem hlaut styrk úr Uppbyggingarsjóði Suðurlands.
Mjög góð aðsókn hefur verið á sýningarnar. Þrjú stór sjónvörp á staðnum gerir upplifunina enn betri.