Vestmannaeyjar: Raunverulegt verðmætasköpunar vetur-sumar-vor og haust
HBH
Vestmannaeyjar. Ljósmynd/Halldór B. Halldórsson
Johann Halld Min

Aðsend grein

Jóhann Halldórsson

Sennilega hefur aldrei verið eins mikið í gangi og jafn mikil verðmætasköpun að eiga sér stað á einu atvinnusvæði á Íslandi. Nýjasta yfirlýsing um mikilvægi stórskipakants vegna fóðurframleiðslu er enn eitt dæmið.

„Bent er á að uppbygging hjá Laxey, ásamt viljayfirlýsingu um að Vestmannaeyjar geti orðið þjónustuhöfn fyrir hugsanlegt úthafseldi, styrki rök fyrir því að fóðurframleiðsla verði staðsett í Eyjum. Samkvæmt áætlunum má gera ráð fyrir að innan fárra ára verði fóðurþörf fyrir um 100 þúsund tonn af laxi miðað við þau eldisáform sem nú liggja fyrir.”

Þess má geta að stærsti fóðurframleiðandi í heiminum í dag, Skretting er hluthafi í Laxey.

Það slær því svolítið skökku við að framkvæmda-og hafnarráð telji ríkja metnaðar- og áhugaleysi hjá stjórnvöldum gagnvart uppbyggingu stórskipakants í Vestmannaeyjahöfn sem loksins er talin þjóðhagslega hagkvæm framkvæmd.

Við þetta bætist svo gríðarleg framtakssemi Eyjagangna sem eru að klára 200 milljón króna hlutafjáraukningu með þátttöku stærstu fyrirtækja í Vestmannaeyjum, Vestmannaeyjabæ, Rangárþingi eystra og Íslandsbanka.

Á sama tíma og stærstu fyrirtæki landsins, stærstu fjármálafyrirtæki landsins, alþjóðlegir fjárfestar, og alþjóðlegar fjármálastofnanir, hafa þegar fjárfest og sýna nú áhuga á frekari fjárfestingu í Eyjum. Virðist ekkert bóla á fjármagni ríkisstjórnarinnar sem var öll að vilja gerð fyrir kosningar að leggja fjármagn í verkefnin og stuðla að aukinni innviðauppbyggingu.

Þrátt fyrir þetta áhugaleysi er ríkisstjórnin boðin og búin að þiggja væna sneið af kökunni af þeim verðmætunum sem eru að skapast í Eyjum !

Það er svo spurning hvort að vilji hennar til fjárframlaga aukist nú þegar að stefnir í góða loðnuvertíð þar sem mesta verðmætasköpunin mun sennilega vera í Vestmannaeyjum sem gæti skilað þjóðarbúinu í kringum 10 milljörðum í útflutningstekjur og skattspori uppá a.m.k. hundruði milljóna.

Til að setja þessa hluti svo í eitthvert samhengi hafa ekki einu sinni fengist 60 milljónir fyrir fyrsta rannsóknarþrep vegna fýsileika jarðgangna til Eyja !

Mér dettur þá í hug amma sem kenndi mér að maður ætti bæði að gefa og þiggja !

 

Jóhann Halldórsson

 

Hér að neðan eru fréttir af verðmætasköpuninni sem er raunverulega að eiga sér stað í Vestmannaeyjum.

Taka skal fram að þetta eru einungis fréttir í janúar !!!

 

Nýjustu fréttir

Vestmannaeyjar: Raunverulegt verðmætasköpunar vetur-sumar-vor og haust
Tími til kominn að taka næsta skref
Ákvarðanir fyrir framtíðarkynslóðir
Í dag eru 75 ár frá Glitfaxaslysinu
Hárígræðslur í Tyrklandi 
Húsið of hátt – skipulagi breytt eftir á og nágrannar ósáttir
Elliði fyrir leikinn gegn Dönum
Spáð í spilin fyrir stórleikinn í kvöld á EM
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.