Viðvaranir í öllum landshlutum
Viðvaranir Veðurstofunnar ná í alla landshluta. Skjáskot/vedur.is

Veðurstofan hefur gefið út  appelsínugular viðvaranir vegna veðurs á eftirtöldum svæðum: Vestfirðir, Norðurland eystra, Miðhálendi og Strandir og norðurland vestra. Þá hafa verið gefnar út gular viðvaranir vegna veðurs á þessum svæðum: Höfuðborgarsvæðið, Suðurland, Faxaflói, Breiðafjörður, Vestfirðir, Norðurland eystra, Austurland að Glettingi, Austfirðir, Miðhálendi og Strandir og norðurland vestra.

Suðurland: Talsverð eða mikil rigning (Gult ástand)

Á Suðurlandi tekur viðvörunin gildi á Þorláksmessu, 23. des. kl. 16:00 og gildir fram á aðfangadag, 24. des. kl. 23:00.
Í viðvörunarorðum segir: Talsverð eða mikil rigning. Búast má við auknu afrennsi og vatnavöxtum í ám og lækjum sem eykur hættu á flóðum og skriðuföllum og getur valdið tjóni og raskað samgöngum. Einnig er aukið álag á fráveitukerfi. Fólk er hvatt til að sýna aðgát og einnig að huga að niðurföllum til að forðast vatnstjón.

Suðurland

Suðaustanátt, víða 10-15 m/s og skúrir. Hiti 4 til 9 stig. Samfelldari rigning eða slydda undir kvöld og kólnar. Suðvestan 3-10 seint í kvöld og lítilsháttar él eða skúrir. Vaxandi sunnanátt á morgun, 13-20 seinnipartinn og rigning. Hiti 5 til 9 stig.
Spá gerð: 22.12.2025 12:06. Gildir til: 24.12.2025 00:00.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á miðvikudag (aðfangadagur jóla):
Sunnan 20-28 m/s, hvassast í vindstrengjum á norðanverðu landinu, en 13-20 sunnanlands. Dregur heldur úr vindi seinnipartinn. Talsverð rigning um landið sunnan- og vestanvert, en þurrt norðaustantil. Hiti 7 til 16 stig, hlýjast í hnjúkaþey á Norður- og Austurlandi.

Á fimmtudag (jóladagur):
Sunnan 13-20 og súld eða rigning með köflum, en yfirleitt þurrt á Norður- og Austurlandi. Áfram hlýtt í veðri. Hægari vestast á landinu um kvöldið og bætir í úrkomu.

Á föstudag (annar í jólum):
Suðvestan 8-13, en 13-18 á norðanverðu landinu fram á kvöld. Dálítil él eða slydduél, en þurrt að mestu á austanverðu landinu. Hiti 0 til 5 stig.

Á laugardag:
Sunnanátt og dálítil væta sunnan- og vestanlands, annars þurrt. Hiti víða 5 til 10 stig.

Á sunnudag:
Fremur hæg suðvestlæg átt með stöku skúrum á Suður- og Vesturlandi, en bjart fyrir norðan og austan. Heldur kólnandi.
Spá gerð: 22.12.2025 08:54. Gildir til: 29.12.2025 12:00.

Nýjustu fréttir

Dagskrá fyrsta Þorrablóts ÍBV klár
Fækkun sjúkrafluga milli lands og Eyja
Tökum þátt í að gera bæinn okkar enn betri!
Hvert siglir Herjólfur í dag
Efnilegir pílukastarar láta til sín taka
Vestmannaeyjar: Raunverulegt verðmætasköpunar vetur-sumar-vor og haust
Tími til kominn að taka næsta skref
Ákvarðanir fyrir framtíðarkynslóðir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.