Vinnslustöðin býr sig undir hugsanlegt Kötlugos
Kötlugos kemur fyrr eða síðar og margvíslegar viðbúnaðaráætlanir liggja fyrir af því tilefni. Katla gýs, spurningin er ekki hvort heldur hvenær og þá hve kröftugt gosið verður. Stjórnendur Vinnslustöðvarinnar hafa notað tímann í verkfallinu meðal annars til þess að ræða viðbúnað og öryggismál á tímum hamfara á borð við stórgos í Kötlu.
�?etta kemur fram á vef Vinnslustöðvarinnar, vsv.is. �??Ármann Höskuldsson og Ingibjörg Jónsdóttir, vísindamenn á Jarðvísindastofnun, komu til Eyja og kynntu fyrir stjórnendum VSV mögulegar afleiðingar náttúruvár sem Eyjamenn búa við, einkum goss í Kötlu en þar hefur skjálftavirkni verið mikil að undanförnu.
Flestar byggingar VSV eru á hættusvæði flóðbylgju sem er líkleg afleiðing stórgoss í Kötlu. �?á eru skip félagsins, bæði í höfn og á sjó, í hættu af sömu ástæðu.
Flóðahætta er eitt en mikilvægt er líka að búa sig undir öskufall frá Kötlu í Eyjum eða að eiturgufur berist hingað frá eldstöðinni. Eftir fyrirlestur og umræður undirbjuggu stjórnendur VSV viðbrögð á sjó og landi og settu upp drög að viðbúnaðaráætlun. Er upplagt að nýta verkfallstímann til að yfirfara ýmis innri málefni félagsins og þá ekki síst öryggismálin,�?? segir á vsv.is.
Myndir: Frá fundinum, Binni og Ármann spá í kort af jarðvársvæðinu. Fyrirhyggja og viðbúnaður í nýju uppsjávarhúsi.

Nýjustu fréttir

Elliði Snær skoraði átta mörk í jafntefli Íslands
Fylgi flokkanna í Eyjum
Komu inn vegna veðurs
Afslættir hverfa með bættu raforkuöryggi
Jason Stefánsson meðal útskriftarnema FÍV 
Foreign Monkeys gefa út þriðju breiðskífu sína – „III“
Úttekt á fasteignagjöldum ársins
Mikil gróska í fimleikastarfi og mót framundan
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.