Á aðalfundi Vinnslustöðvarinnar hf. þann 10. apríl kom fram að félagið hafi náð sterkum viðsnúningi í rekstri á árinu 2025 þrátt fyrir krefjandi rekstrarskilyrði, takmarkaðan loðnukvóta og aukið álag á íslenskan sjávarútveg. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá VSV sem birt er á heimasíðu fyrirtækisins.
Þar segir jafnframt að heildartekjur hafi aukist um 4,8% og námu 187 milljónum evra, eða um 27 milljörðum króna. Hagnaður samstæðunnar nam 9,9 milljónum evra á árinu 2025, jafnvirði um 1,5 milljarða króna, samanborið við tap árið áður. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) nam 41 milljónum evra, samanborið við 27 milljón evrur árið áður.
„Það varð mikill viðsnúningur í rekstri samstæðunnar frá fyrra ári og niðurstaðan er góð miðað við að loðnukvóti var afar lítill. Það sýnir styrk rekstrarins, fjölbreytni starfseminnar og getu starfsfólks til að bregðast við breyttum aðstæðum,“ sagði Guðmundur Örn Gunnarsson, stjórnarformaður Vinnslustöðvarinnar.
Helstu skýringar á bættri afkomu voru hækkandi verð á botnfiskafurðum, góð makrílveiði og sterkt ár hjá erlendum félögum samstæðunnar.
Á aðalfundinum kom fram að hækkun veiðigjalda, sem taka gildi á yfirstandandi ári og hærri rekstrarkostnaður hafi kallað á erfiðar ákvarðanir á árinu.
Í lok árs var ákveðið að loka Leo Seafood og selja Þórunni Sveinsdóttur VE. Aðgerðirnar voru nauðsynlegar til að lækka skuldir, styrkja rekstur og búa félagið undir aukið rekstrarálag.
„Þetta voru þungbærar ákvarðanir, bæði fyrir starfsfólk og samfélagið í Eyjum, en þær voru nauðsynlegar til að tryggja traustan rekstrargrundvöll félagsins til framtíðar,“ sagði Guðmundur Örn.
Á árinu 2025 námu fjárfestingar um 2,1 milljarði króna. Þar með lýkur uppbyggingu Kima, nýju botnfisk- og uppsjávarhúsi, sem hófst árið 2024. Í Kima eru einnig ný hreinsistöð, sem hreinsar allt frárennsli frá vinnslum félagsins auk nýs flokkunar- og endurvigtunarkerfi sem lokið verður á þessu ári.
Þá er stefnt að kaupum á notuðu skipi en félagið féll frá nýsmíði botnfiskskipa sökum hækkunar veiðigjalda eins og fram kom á síðasta aðalfundi.
Fjárhagsstaða félagsins styrktist á árinu. Skuldir lækkuðu og eigið fé jókst. Stjórn félagsins lagði því til að greiddur verði allt að 6 milljón evrur í arð til hluthafa sem jafngildir liðlega 2% vaxtagreiðslu á áætlað markaðsvirði hlutafjár félagsins. Til samanburðar eru stýrivextir Seðlabanka Íslands nú 7,5%
„Það er sérstaklega ánægjulegt að sjá skuldir félagsins fara lækkandi. Sá árangur er bæði afrakstur góðs rekstrar og markvissra aðgerða,“ sagði Guðmundur Örn.
Á aðalfundinum var jafnframt farið yfir þær áskoranir sem íslenskur sjávarútvegur stendur frammi fyrir vegna breyttra leikreglna stjórnvalda.
Guðmundur Örn Gunnarsson gagnrýndi verulega hækkun veiðigjalda og sagði að skortur á fyrirsjáanleika í gjaldtöku og regluverki hefði þegar áhrif á fjárfestingarákvarðanir og rekstrarskilyrði fyrirtækja í greininni.
Þá lýsti hann áhyggjum af nýjum milliríkjasamningi um makrílveiðar, sem gæti dregið úr landvinnslu á Íslandi og þar með haft áhrif á verðmætasköpun, störf og byggðaþróun.
„Við þurfum stöðugt og fyrirsjáanlegt rekstrarumhverfi til að geta haldið áfram að fjárfesta, skapa verðmæti og byggja upp samfélög um land allt,“ sagði Guðmundur Örn.
Á fundinum var einnig lögð áhersla á mikilvægi bættra innviða í Vestmannaeyjum, þar á meðal aukið raforkuöryggi, betri flutningslausnir og áframhaldandi uppbyggingu hafnarmannvirkja.
Vinnslustöðin horfir bjartsýn fram á veginn þrátt fyrir óvissu í alþjóðlegu efnahagsumhverfi. Félagið hefur nýlega ráðist í breytingar á skipulagi starfseminnar til að skerpa enn frekar á hagkvæmni og framtíðarsýn.
Árið 2026 markar jafnframt stór tímamót í sögu félagsins, en í desember verða 80 ár liðin frá stofnun Vinnslustöðvarinnar.
„Við höfum gengið í gegnum marga storma á liðnum áratugum. Við stöndum sterk, með öflugt starfsfólk, sterkan rekstur og trú á framtíðina,“ sagði Guðmundur Örn að lokum.