Yfir 60% skráð kílómetrastöðu
rafhledsla_bill
Fyrsti gjalddagi vegna kílómetragjalds er 1. febrúar og eindagi 14 dögum síðar. Eyjar.net/Tryggvi Már Sæmundsson

Yfir 60% þeirra sem eiga rafmagns-, vetnis- og tengiltvinnbíla hafa nú skráð kílómetrastöðu á Mínum síðum Ísland.is eða í Ísland.is appinu og eru skráningarnar orðnar rúmlega 29.000. Um áramótin tók gildi kílómetragjald fyrir notkun slíkra bíla og hafa eigendur frest til 20. janúar til að skrá kílómetrastöðuna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu.

Kílómetragjaldið byggist á fjölda ekinna kílómetra og því munu þeir greiða sem nota vegakerfið. Gjaldið verður 6 kr/km fyrir rafmagns- og vetnisbíla en 2 kr/km fyrir tengiltvinnbíla.

Fyrsti gjalddagi vegna kílómetragjalds er 1. febrúar og eindagi 14 dögum síðar. Þeir sem ekki skrá bíla sína fyrir 20. janúar fá reikning fyrir áætlaðri notkun sem miðast við meðalakstur fólksbíls og eru rétt rúmlega sjö þúsund krónur á mánuði. Með skráningu á kílómetrastöðu á Ísland.is munu greiðslur endurspegla notkun bíls.

Áfram stutt við kaup á rafbílum

Stjórnvöld munu halda áfram að styðja við kaup á rafmagns- og vetnisbílum þó að form stuðningsins hafi breyst um áramótin. Veittur verður beinn stuðningur við kaup á slíkum bílum í stað ívilnunar í virðisaukaskatti. Orkusjóður mun annast afgreiðslu styrkjanna. Umsækjendur sækja um með stafrænum hætti á Mínum síðum á Ísland.is. Allar nánari upplýsingar um styrkafgreiðslu er að finna á vef Orkusjóðs og á Ísland.is. Því verður áfram verulegur ávinningur af orkuskiptum fyrir bíleigendur, segir í tilkynningunni.

Nýjustu fréttir

Gamla myndin: Mikli snjórinn í Eyjum í mars 1968
Stefnir í spennandi prófkjör hjá Sjálfstæðismönnum
Vonir vakna hjá TV á Íslandsmóti skákfélaga
Ekkert siglt í dag
Þóra Guðný og Svenni um bygginarframkvæmdina  
Gular viðvaranir víðast hvar
Ófært til lands – uppfært
Gyllta flóran keppir fyrir hönd Féló
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.