Bæjarfulltrúar Hveragerðisbæjar hafa ákveðið að taka höndum saman og vinna í sameiningu að fjárhagsáætlunargerð bæjarins fyrir árið 2009.
Allir bæjarfulltrúar hvar í flokki sem þeir standa eru sammála um að efnahagslegt umhverfi sveitarfélaga og þjóðarinnar allrar sé með þeim hætti að brýna nauðsyn beri til að ráðamenn slíðri hin pólitísku sverð og einbeiti sér að þeim verkefnum sem framundan eru.