Finnbogi Gunnarsson hefur verið brennukóngur á Þjóðhátíð frá árinu 1995 er hann tók við að Sigurði Reimarssyni sem hafði þá um áratugaskeið tendrað í brennunni á Fjósakletti við upphaf Þjóðhátíðar í Herjólfsdal. Finnbogi og Elínborg Tryggvadóttir, hans ektakona, voru á ferð í Dalnum á dögunum að fylgjast með gangi mála við undirbúning Þjóðhátíðar.