�??Leyndardómar Suðurlands�??
Print
Framundan er umfangsmikið kynningarátak á Suðurlandi þar sem ferðaþjónustufyrirtækjum, matvælaframleiðendum, félögum, fyrirtækjum, stofnunum, einstaklingum og öllum öðrum áhugasömum er boðið að taka þátt í. Átakið kallast �??Leyndadómar Suðurlands�?? og mun standa yfir frá miðvikudeginum 26. mars til sunnudagsins 6. apríl nk. �?að eru Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) og Markaðsstofa Suðurlands, sem standa fyrir verkefninu.
Markmiðið er að kynna sem mest af Suðurlandi og fá sem flesta gesti til að heimsækja Suðurland. Megininntakið í átakinu er Matur �?? Saga �?? Menning. Hér er kærkomið tækifæri, til að lengja ferðamannatímabilið og koma öllum leyndardómum Suðurlands á framfæri. Markhópurinn eru allir Íslendingar. Á Suðurlandi eru mörg leyndarmál, sem eru vel þess virði að deila, en �??leyndarmál�?� – er einmitt boðskapur ársins í herferð Íslandsstofu, �??Ísland allt árið�?� . Með því að blása í herlúðra Sunnlendinga samtímis er mögulegt að ná samlegð milli verkefna. Dæmi um atburði þessa daga gætu verið tilboð á veitingastöðum, tveir fyrir einn í gistingu, ókeypis í sund, listsýningar, tónleikar, skemmtanir, tilboð á sunnlenskum vörum, lengdur opnunartími verslana , ókeypis í strætó, tilboð í afþreyingu, opin hús víða í fjórðungunum og fleira og fleira.
Hægt er að fylgjast með framvindu verkefnisins á heimasíðu SASS, www.sudurland.is og á fésbókarsíðu þess, �??Leyndardómar Suðurlands�??. Hafi fólk einhverjar góðar hugmyndir um �??leyndardóma�??, sem hægt væri að koma á framfæri er best að setja sig í samband við kynningarfulltrúa verkefnisins, Magnús Hlyn Hreiðarsson í gegnum netfangið mhh@sudurland.is eða síma 480-8200 eða �?órarinn Egil Sveinsson, verkefnisstjóra í gegnum netfangið thorarinn@sudurland.is og í síma 480-8200.

Nýjustu fréttir

Tannverndarvika
Gyllta flóran frá Féló vann Stíl 2026
Útboð Vestmannaeyjabæjar um heilsurækt aftur til kærunefndar
Myndband frá höfninni: Steðji VE landar
Að loknu prófkjöri
Bærinn eignfærir lögfræðikostnað  
ÍBV tapaði gegn Haukum
Bæjarráð hafnar bótakröfu vegna gatnagerðar við Alþýðuhús
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.