Náðum við athygli þinni? …. Gott, þetta eru nefnilega áríðandi skilaboð, því hann Sævar Helgi Bragason, �??gaurinn sem gaf öllum grunnskólabörnum sólmyrkvagleraugu�?? verður í Eyjum á mánudaginn, 27. apríl. Hann ætlar, í tengslum við aðalfund Stjörnufræðifélags Vm, að halda spennandi og skemmtilegan fyrirlestur um sólmyrkva, tunglmyrkva, stjörnur og alheiminn. Hann mun segja okkur frá því helsta sem er að gerast í geimvísindunum og einnig mun hann segja okkur hvernig stjörnuskoðunarstöðin á Hótel Rangá hefur gengið, en eins og komið hefur fram hyggst Stjörnufræðifélagið hefja byggingu á norðurljósa- og stjörnuskoðunaraðstöðu á Heimaey á þessu ári.
Fyrirlestur Sævars hefst kl. 20:00 og lýkur um kl. 21:00 en þá tekur við Aðalfundur Stjörnufræðifélags Vestmannaeyja 2015. Allir velkomnir.
Félagar í SFV eru nú komnir yfir 50 og enn getum við bætt við félögum. Árgjaldið er aðeins 3.000,- kr og 1.500,- fyrir skólafólk og heldri borgara.