Stór viðbygging við Íþróttamiðstöðina í útboð
Tölvugerð mynd sem sýnir fyrirhugaða viðbyggingu við Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja. Mynd/vestmannaeyjar.is

Vestmannaeyjabær hefur auglýst útboð vegna fyrirhugaðrar viðbyggingar við Íþróttamiðstöðina, en um er að ræða tæplega 2.000 fermetra, tveggja hæða byggingu sem mun stórbæta alla aðstöðu fyrir íþróttaiðkendur, nemendur og gesti.

Á neðri hæð verða nýir og fullbúnir búningsklefar ásamt endurbættri aðstöðu þar sem lögð verður áhersla á hagkvæmni og gæði. Efri hæðin verður hins vegar afhent fokheld, sem gefur möguleika á frekari uppbyggingu síðar.

Viðbyggingin verður klædd með álklæðningu og búin vönduðum gluggum sem hannaðir eru til að standast erfið veðurskilyrði. Umfang framkvæmdanna er talsvert en áætlað er að um 1.500 rúmmetrar af steinsteypu og 88 tonn af bendistáli fari í bygginguna.

Samkvæmt áætlunum á verkinu að ljúka 1. maí 2028, en tilboðsfrestur rennur út þriðjudaginn 14. apríl, að því er segir í frétt á vef bæjaryfirvalda.

Nýjustu fréttir

Dýpkunin í Landeyjahöfn sögð ganga vonum framar
ÍBV fallið úr Bestu deild karla eftir tap gegn Þór á Akureyri
ÍBV fyrst til að leggja ÍR að velli á tímabilinu
Eyjar liðins tíma lifna við – 1. þáttur
Tveir fyrir einn… og ævilöng áhrif
Íbúar hvattir til að móta framtíð atvinnulífs í Eyjum
„Mikilvægt að við fáum að láta rödd okkar heyrast“
Eyjamenn geta lyft sér af botninum með sigri á Þór
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.