100 milljónir í Lóu - nýsköpunarstyrki fyrir landsbyggðina
Mynd: Jón Magnússon

Ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra auglýsir eftir umsóknum um Lóu – nýsköpunarstyrki fyrir landsbyggðina. Hlutverk styrkjanna, sem nú verða veittir í fyrsta sinn, er að styðja við nýsköpun, eflingu atvinnulífs og verðmætasköpun sem byggir á hugviti, þekkingu og nýrri færni, á forsendum svæðanna sjálfra.

Lóa styður við nýsköpunarstefnu og er liður í breytingum á opinberu stuðningsumhverfi nýsköpunar vegna fyrirhugaðar niðurlagningar Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra:
„Lóa mun styðja við og auka slagkraft nýsköpunarverkefna og samstarf aðila um land allt, á forsendum svæðanna sjálfra. Hún helst í hendur við annan mikilvægan stuðning á vettvangi nýsköpunar á landsbyggðinni og í atvinnulífinu, svo sem sóknaráætlun landshlutanna, byggðaáætlun og aðrar svæðisbundnar áherslur. Í þessu aukna samstarfi sem við erum að sjá víða um land felast mikil tækifæri. Við erum að styðja við það.“

Heildarfjárhæð styrkja árið 2021 er 100 milljónir króna, en hámarksstyrkur til hvers verkefnis er 20 milljónir króna og er úthlutað til árs í senn. Ráðherra mun skipa matshóp sem fer yfir styrkhæfi umsókna í samræmi við nýsköpunarstefnu og áherslur stjórnvalda. Hópurinn gerir tillögur til ráðherra um veitingu styrkja.

Umsóknarfrestur er til 09. mars 2021.
Umsóknum er skilað rafrænt. Opnað verður fyrir umsóknir þann 11. febrúar á eyðublaðavef stjórnarráðsins

Nýjustu fréttir

Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Dýptarmælingar fyrirhugaðar í Landeyjahöfn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.