Á sýningunni verða sýndar myndir úr fórum útgáfunnar sem teknar hafa verið við ýmis tækifæri og að sjálfsögðu verða blöðin sem komið hafa út látin liggja frammi. Á sýningunni verður því hægt að rifja upp það helsta úr sögu svæðisins frá þessum tíma bæði í máli, en þó aðallega í myndum. Sýningin stendur yfir allan desembermánuð en formleg opnun er fimmtudaginn 7. desember kl. 18 og verður þá boðið upp á kaffi og konfekt.