Gunnar skoraði gegn Real Madrid

Gunnar Heiðar Þorvaldsson lét að sér kveða í æfingaleik í gær með þýska liðinu Hannover sem tók á móti spænska meistaraliðinu Real Madrid í Þýskalandi. Landsliðsframherjinn kom inná sem varamaður í síðari hálfleik þegar þýska liðið var marki undir og skoraði Gunnar annað mark leiksins á 63. mínútu.

Vestmannaeyingurinn hafði aðeins verið inni á vellinum í eina mínútu áður en hann hafði skorað. Það voru tæplega 48.000 áhorfendur sem mættu á leikinn á AWD-Arena í Hannover. Þjóðverjinn Bernd Schüster er þjálfari Real Madrid og er hann með lið sitt í æfingaferð í heimalandi sínu. Lið Real Madrid var þannig skipað: Casillas – Cicinho (62. Pepe), Ramos, Cannavaro, Torres – de la Red (62. Granero), Diarra, Balboa, Bueno (46. Guti) – Raul (62. Saviola), Higuain.

Nýjustu fréttir

Laxey á Seafood Expo North America
Trúin og andlegt starf styrkur í sorginni
Heimir heldur áfram með Írland – samningur til 2028
Vatn loksins farið að renna í laugina
Eyjalistinn tilbúinn – Miðflokkurinn kynnir sinn lista í kvöld
Norlandair með lægsta tilboð í flug til Eyja
„Hörkufiskirí”
Gular viðvaranir í öllum landshlutum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.