Hjalti Kristjánsson skipti sjálfum sér inn á

Lið KFS hefur spilað í 3.deild í sumar og sitja í 3.sæti A riðils með 20 stig. Hjalti Kristjánsson hefur verið þjálfari KFS frá sameiningu og í gærkvöldi skipti hann sjálfum sér inn á þegar markmaður KFS meiddist. Að mati Hjalta er stærsta vandamál fótboltans í eyjum er aðstöðuleysið og saknar hann þess að hafa ekki gervigras til að æfa á yfir vetrarmánuðina og fyrir þá leiki sem spilaðir eru á gervigrasi á fastalandinu. Hjalti hefur nóg að gera og eru næstu verkefni hjá honum verkefni U-21 landsliðsins í knattspyrnu við Kýpur, Hjalti hefur verið læknir U-21 liðsins frá árinu 1999.

Eyjar.net sendi Hjalta nokkrar spurningar varðandi sumarið og leikinn í gærkvöldi.

 

Nú spilaði KFS við KB í gærkvöldi og leikurinn endaði 2-4 og útlit er fyrir að KFS endi í 3-4 sæti í sínum riðlinum eftir mótið, bjóstu við betri stöðu í lok sumars? Já, átti von á 2. sæti og framan af móti vorum við örugglega nógu góðir til þess. Vörnin var betri en nokkru sinni fyrr með Sindra Viðars. sem aðalmann, en hann valdi að fara yfir til ÍBV fyrir 1. ágúst og það hefur haft sín áhrif. Ótrúleg hrina af mótlæti að undanförnu hefur hins vegar gert það að engu, þyrfti langan pistil til að fjalla um það ólán, sem elt hefur félagið.  Mikil forföll og getan minnkað, en við vonumst til að halda 3. sætinu með sigri í næsta leik og ná þá besta sæti okkar í 3 ár.

Undanfarin ár hefur KFS verið með venslasamning við ÍBV telurðu að það samkomulag hafi verið báðum liða til góða? Hiklaust.  Þeir spila nú með 3 leikmenn, sem við höfum alið upp fyrir þá undanfarin ár; Yngva Bor., Stefán Björn og Pétur Run.  Önnur og 3. deildin er mjög góður skóli fyrir slíka leikmenn. Við höfum líka notið góðs af þessum/slíkum leikmönnum, vorum með 3 í ár, fengum þá strax í apríl og gátum því byggt upp sterkan kjarna snemma, það var mikil framför í samskiptunum frá fyrri árum, þökk sé Heimi, sem hefur jú spilað með báðum félögum.

KFS hefur þurft að halda úti æfingum í eyjum og á höfuðborgarsvæðinu, hversu mikil áhrif er það að hafa á leik liðsins? Töluverð, nokkrum sinnum í sumar þurfti að kynna nýja leikmenn í klefanum fyrir leik, fyrir hinum hópnum! Segir sitt.  Aldrei hægt að taka uppstillingar almennilega fyrir leiki, því alltaf vantar lykilmenn úr hinum hópnum.  Hins vegar væri KFS búið að vera, ef ekki hefði komið til Reykjavíkurstarfsemin, sem batnar með hverju árinu.

Nú spilaðir þú í leiknum á móti KB í gærkvöldi og spilaðir það með peyjunum þínum Tryggva og Hjalta, hvað var til þess að þú skiptir sjálfum þér inná 48.ára gömlum? Skortur á mannskap, ég hélt í fyrra einu sinni enn, að mínum ferli væri lokið.  Í gær var ég 16. maður á skýrslu, markmaðurinn meiddist illa 8 mín. fyrir leikslok og því ekki um annað að ræða, ég er skárri en enginn, enn þá!

Fyrir þetta tímabil fór Yngvi Borgþórsson frá KFS yfir í ÍBV, hversu mikill munur er getulega á þessum liðum og heldurðu að í framtíðinni verði fleiri leikmenn sem komi frá KFS yfir í ÍBV? Með bæði lið í toppstandi er munurinn lítill, minni en flestir halda.  Við erum hins vegar mjög köflóttir, af því að mjög fáir halda sér við efnið allt sumarið. Á tímabili í vor taldi ég að við höfum verið síst lakari en ÍBV, en í dag myndu þeir rúlla yfir okkur. Munurinn á Yngva er hins vegar að hann er í mun betra standi en hjá okkur, það er auðvitað aðalmunurinn á liðunum almennt, að hjá mér mæta menn sjaldnar á æfingar, en eru alls ekki lélegri fótboltamenn margir hverjir, ég tel okkur eiga nokkra leikmenn í dag, sem væru nógu góðir fyrir ÍBV-hópinn, ef þeir gæfu því allan sinn frítíma. Já, ég held að þetta samstarf sé komið til að vera, ég tala nú ekki um, ef Heimir verður áfram, okkar samstarf er til fyrirmyndar og gagnkvæm virðing, sem er mikilvæg.

Nýjustu fréttir

Laskað lið ÍBV tapaði gegn Val
Athugasemd
Dísa leiðir Eyjalistann
Kvenfélagið Líkn færði HSU veglega gjöf
Loðnan tengir saman Vestmannaeyjar og Japan
Listir og menning í Framhaldsskóla Vestmannaeyja
Lestur ársreiknings bæjarins gefur allt aðra mynd
Ísólfur Gylfi – 42 ár frá Helliseyjarslysinu

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.