Ekki öll nótt úti enn þrátt fyrir slæmt tap

Ísland tapaði á grátlegan máta fyrir Slóveníu í undankeppni EM í knattspyrnu í gær. Liðið fékk á sig sín fyrstu mörk í riðlinum og tapaði um leið sínum fyrstu stigum.

„Við sóttum stanslaust allan leikinn en skoruðum ekki mörkin sem til þurfti. Við vorum líka óheppin að því leyti að við fáum á okkur tvö skot og þau hafna bæði í markinu,” sagði Sigurður Ragnar Eyjólfsson landsliðsþjálfari. „Það var erfitt að brjóta liðið niður, þær eru sterkar og börðust vel. Við fundum ekki svæðin úti á köntunum til að koma með fyrirgjafirnar og klára færin. Við sköpuðum okkur þó mörg færi en það dugði ekki til.”Íslenska liðið fékk draumabyrjun í leiknum og Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði strax á fjórðu mínútu eftir að hafa stungið sér inn á milli tveggja varnarmanna. Hún lét vaða að marki utan vítateigs og boltinn hafnaði í netinu.

Jöfnunarmark Slóvena kom aðeins tveimur mínútum síðar, beint úr aukaspyrnu af löngu færi. Markið var glæsilegt og til að bæta gráu á svart var heimamönnum dæmt víti þegar Guðný Óðinsdóttir braut af sér. Þóra B. Helgadóttir kom engum vörnum við í vítinu.

Það var ekki fyrr en undir lok hálfleiksins sem íslensku leikmennirnir fóru að bíta aftur frá sér og fengu nokkur mjög góð færi en skoruðu þó ekki. Þannig var það allan síðari hálfleikinn en besta færið fékk Margrét Lára á 55. mínútu er hún fékk stungusendingu inn fyrir vörn Slóvena. Hún var ein á auðum sjó en skot hennar hafnaði í slánni.

Eftir á að koma í ljós hverjar afleiðingar tapsins verða en ljóst er að Ísland verður að vinna annaðhvort Serbíu eða Frakkland á útivelli til að eiga minnstu möguleika á að komast áfram í úrslitakeppni EM í Finnlandi árið 2009.

Sigurður Ragnar segir að þrátt fyrir allt sé ekki öll nótt úti enn. „Við gerum okkur erfiðar fyrir en ef við vinnum þessa fjóra leiki sem eru eftir vinnum við riðilinn. Við þurfum því að treysta á okkur sjálfar.”

Nýjustu fréttir

Mikilvægasta skipið
Tilnefnt í faghóp vegna nýs leikskóla í Löngulág
Ábending frá Herjólfi
Appelsínugular viðvaranir gefnar út
Brýn þörf á úrbótum í Landeyjahöfn – tillögur væntanlegar í vor
Díana Dögg og Andrea deildarmeistarar í Þýskalandi
Gleði og góð mæting á páskaeggjaleitinni – myndir
Viðvörun fyrir allt landið á annan í páskum

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.