Tókst ekki að kaupa 35% í Vinnslustöð

Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson, stjórnarformaður Ísfélagsins, segir að meginástæða þess að kauprétturinn á bréfum Stillu hafi ekki verið nýttur sé sú að ekki hafi tekist að uppfylla meginskilyrði Ísfélagsins og Kristins ehf. um að auka hlutinn í Vinnslustöðinni í 35%, ekki aðeins að kaupa 32% hlut Stillu og tengdra félaga.

„Við gerðum tilboð í hlut Lífeyrissjóðs Vestmannaeyja, sem við höfðum góðar vonir um að fá keyptan, en lífeyrissjóðurinn tilkynnti okkur um að hann myndi ekki selja. Í gærkvöldi varð ljóst að við myndum því ekki ná þessu 35% marki, sem var algjört skilyrði af okkar hálfu. Því ákváðum við ekki að fara lengra með málið,” segir Gunnlaugur Sævar.

Önnur helstu skilyrði Ísfélagsins og Kristins fyrir nýtingu kaupréttarins voru fjármögnun á kaupunum og samkomulag við stjórnendur Vinnslustöðvarinnar um framtíðarrekstur fyrirtækisins. Gunnlaugur Sævar segir fjármögnunina ekki hafa verið vandamál en hitt hafi verið í vinnslu. Ágætur andi hafi verið í viðræðum við forráðamenn Vinnslustöðvarinnar.

 

Nýjustu fréttir

Arnar kom íslenska landsliðinu á EM 2026
ÍBV og FH skildu jöfn á Hásteinsvelli
Vinnslustöðin snýr vörn í sókn á krefjandi ári
Bilun í Herjólfi veldur lengri siglingatíma
Spurt og svarað: Guðni Hjöll frá Miðflokknum
ÍBV hefur leik í Bestu deildinni – tekur á móti FH á Hásteinsvelli
Flugvél frá Icelandair flaug óvenju lágt yfir Eyjum
Lækkandi ölduhæð og Álfsnesið á leiðinni
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.