Menningarhús

Ég er í nefnd um byggingu menningarhús í Vestmannaeyjum. Með mér í nefndinni eru Gunnlaugur Grettisson, Frosti Gíslason og Karítas Gunnarsdóttir. Ég ætla nú ekki að fara í forsögu þessa máls, en í stuttu máli ákvað ríkisstjórn Davíðs Oddsonar fyrir mörgum árum að setja fjármagn í byggingu fjögurra menningarhúsa úti á landi. Eitt á að rísa í Vestmannaeyjum og fengum við úthlutað 180.000.000 kr. gegn mótframlagi bæjarins upp á 120.000.000 kr. Auk þess setti ríkið 100.000.000 kr. í söfnin okkar. Bærinn hefur ákveðið að setja 200.000.000 kr. í dæmið þannig að við höfum alls:480.000.000 kr. til að framkvæma fyrir.

Við tókum þá ákvörðun að mæla með staðsetningu við Ráðhúströð við hliðina á Bóka og byggðasafninu. Við töldum það góða staðsetningu auk þess að það gæti verið gott að hafa alla safnastarfsemi undir sama þaki. Þetta gæti líka orðið lifandi staður sem fólk vildi koma á og allir gætu fundið eitthvað áhugavert að sækjast eftir.

Hér sjáum við Ísfélagið og Fiskiðjuna  en fær er fyrirhuguð staðsetning Menningarhús Vestmannaeyja En margir hafa komið með aðrar góðar hugmyndir. Við urðum að taka ákvörðun og keyra málið upp úr því spólfari sem það hafði verið allt of lengi. En nú hafa menn verið að nefna í spjallinu að það væri vert að skoða þann möguleika að rífa gamla Ísfélagshúsið og Fiskiðjuna og byggja húsið þar. Sitt sýnist hverjum og gaman væri að fá skoðun ykkar í umræðuna.

Maggi Braga bloggar á http://maggibraga.blog.is

Nýjustu fréttir

Ekki einhugur um milljóna framlag til ÍBV
Loðnuvertíðin hafin í Eyjum
Heiðurshjónin Hjalti og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025
Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.