Samgöngurráðherra vill Reykjavíkurflugvöll áfram í Vatnsmýrinni

Kristján L. Möller samgönguráðherra sagði í kvöldfréttum á Stöð 2 að Dagur B. Eggertsson borgarstjóri væri velkominn í heimsókn hvenær sem er en ítrekaði jafnframt að hann hefði ávallt verið þeirrar skoðunar að flugvöllurinn ætti að vera í Vatnsmýrinni og tók fram að til stæði að byggja hann upp svo að Iceland Express gæti fengið […]

Nýr þjóðgarðsvörður

Regína Hreinsdóttir landfræðingur hefur verið ráðin þjóðgarðsvörður í Skaftafelli. Hún tekur við af Ragnari Kristjánssyni sem gegnt hefur starfinu frá árinu 1999. (meira…)

Umhverfis-verðlaun í Vík

Fyrstu umhverfisverðlaun Mýrdalshrepps voru afhent á menningarhátíðinni Regnboganum á dögunum. Sigrún Guðmundsdóttir formaður nefndarinnar afhenti Jóni Gunnari Jónssyni, Austurvegi 11b verðlaunin en hefur garður hans lengi verið rómaður fyrir snyrtimennsku og fegurð. (meira…)

Kærðir fyrir vatnsþjófnað

Orkuveita Reykjavíkur (OR) hefur kært átta sumarhúsaeigendur í Grímsnesi fyrir vatnsþjófnað. Fyrirtækið sakar þá um að skammta sér meira heitt vatn en þeir greiða fyrir með því að rjúfa innsigli á svokölluðum mælingarhemli eða með því að tengja fram hjá mælinum. (meira…)

Þjóðvegur í eigu einkaaðila

Auglýsing Ríkiskaups í Mogganum á sunnudaginn hefur vakið mikla athygli hér í Eyjum. Sumir vilja meina að það hafi alltaf legið fyrir að rekstraraðilinn ætti skipið. Því héldu þeir félagar, Egill Arngríms og Jenni fram í spjallinu á dekkjaverkstæðinu hjá Magga Braga í gær. Þar var einnig Stebbi Jónasar sem kom alveg af fjöllum eins […]

Sterk thai núðlusúpa

Þessa súpu bjó ég til um daginn þegar ekkert var til í ískápnum og búðirnar hérna í Salzburg að lokaðar. Þessar aðstæður eru einmitt mitt uppáhald, þá get ég látið “meistarakokkinn” í mér blómstra. Ég náði þetta kvöld að búa til frábæra súpu sem smakkaðist vel og yljaði vel enda í sterkara lagi. Hérna er […]

�?jóðahátíð

Stefnt er að því að halda þjóðahátíð í Þorlákshöfn þann 16. febrúar næstkomandi. Er þetta í annað sinn sem hátíðin er haldin en hún var síðast haldin haustið 2005. Líkt og áður mun Árnesingadeild Rauða Kross Íslands styrkja hátíðina auk þess að vera með kynningarbás á hátíðinni.Á þjóðahátíðinni kynna þær íbúar þeirra þjóða sem búa […]

Áhættumat kynnt íbúum í kvöld

Fulltrúar VST munu kynna áhættumat vegna Urriðafossvirkjunar í félagsheimilinu Félagslundi í kvöld, fimmtudagskvöld. Fulltrúar Landsvirkjunar funduðu með sveitarstjórn í síðustu viku og kynntu þeim drög að áhættumatinu. (meira…)

150 milljónum verður varið til að jafna flutningskostnað

Lagðar verða 150 milljónir króna til jöfnunar flutningskostnaðar á landinu samkvæmt fjárlagafrumvarpinu fyrir næsta ár. Í svari við fyrirspurn á Alþingi í dag um strandsiglingar fagnaði Kristján L. Möller, samgönguráðherra, því að fjármunir væru ætlaðir til að jafna flutningskostnað. Magnús Stefánsson, þingmaður Framsóknarflokksins spurði ráðherrann hvort hann hygðist beita sér fyrir auknum strandsiglingum sem hagkvæmum […]

Blása 2+1 veg út af borðinu

„Við höfum unnið kröftuglega að framgangi þessa máls að undanförnu og nú hafa allar hugmyndir um 2+1 veg milli Reykjavíkur og Selfoss verið blásnar út af borðinu. Raunar hefur málið unnist á undraverðum hraða að undanförnu og því bind ég vonir við að fyrstu framkvæmdir við nýjan Suðurlandsveg hefjist eftir örfáa mánuði, segir Björgvin G. […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.