Lagðar verða 150 milljónir króna til jöfnunar flutningskostnaðar á landinu samkvæmt fjárlagafrumvarpinu fyrir næsta ár. Í svari við fyrirspurn á Alþingi í dag um strandsiglingar fagnaði Kristján L. Möller, samgönguráðherra, því að fjármunir væru ætlaðir til að jafna flutningskostnað. Magnús Stefánsson, þingmaður Framsóknarflokksins spurði ráðherrann hvort hann hygðist beita sér fyrir auknum strandsiglingum sem hagkvæmum kosti. Kristján kvaðst hlynntur slíkum flutningum. Benda mætti á að stjórn Evrópusambandsins reyndi að koma þungaflutningum af þjóðvegum í Evrópu. Hugsanlega mætti hvetja til strandsiglinga með því að bjóða út flutninga á 2500 gámum á einu ári. Færu flutingar niður fyrir þá tölu myndi ríkið greiða mismuninn. Þannig mætti tryggja strandsiglingafyrirtæki lágmarkstekjur.
Árni Þór Sigurðusson, þingmaður VG, benti á að sjóflutningar væru umhverfismál. Í umræðunum benti Grétar Mar Jónsson Frjálsynda flokknum á að þungaflutninar í gegn um höfuðborgina með olíu og bensín væru óviðunandi. Sem betur fer væri flugvélareldsneyti flutt sjóleiðina til Helguvíkur. Kristján Möller bætti við að þrisvar til fjórum sinnum í viku færu fullfermdir olíubílar til Ísafjarðar, ýmist um Hvalfjarðargöng eða fyrir Hvalfjörð eftir því á hvaða tíma sólarhrings þeir væru á ferðinni.
Eitt fyrirtæki stundar sjóflutninga milli Akureyrar og nokkurra annarra hafna. Skipið er skráð í Færeyjum af hagkvæmnisástæðum og sagði samgönguráðherra að með því væru í raun Færeyingar að niðurgreiða sjóflutninga hér á landi.




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.