Samningur um almenningssamgöngur
Í morgun undirrituðu, Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri Hveragerðis og Ragnheiður Hergeirsdóttir, bæjarstjóri Árborgar undir samning við Strætó bs. Markmiðið með samningsgerðinni er að koma á almenningssamgöngum milli Selfoss/Hveragerðis annars vegar og höfuðborgarsvæðisins hins vegar. Þessi aukna þjónusta í almenningssamgöngum gerir íbúum kleift að spara heimilisbílinn og ferðast með strætó á hagstæðu verði en hann mun fara […]
Meðalverð keilu og ufsa aldrei verið eins hátt
Eins og áður hefur komið fram var meðalverð á mörkuðunum mjög hátt í nóvember. Keila hækkaði mest milli ára. Meðalverð á henni var 130,86 kr/kg sem er 72% hærra en í nóvember 2007. Meðalverð á ufsa var 118,05 sem er 71% hækkun milli ára. Meðalverð á þessum tegundum hefur aldrei verið eins hátt í einum […]
ÍBV eða Stjarnan taka á móti Val

Fyrr í dag var dregið í 8 liða úrslitum Subway bikarsins í körfubolta. ÍBV var í pottinum þó liðið eigi enn eftir að leika gegn Stjörnunni í 16 liða úrslitum. Sigurvegari úr þeirri viðureign mætir hins vegar 1. deildarliði Vals í 8 liða úrslitum á heimavelli. ÍBV og Stjarnan eigast við á laugardaginn í Vestmannaeyjum […]
Skuldastaða sunnlenskra kúabúa
Miklar umræður hafa verið í samfélaginu undanfarið um skuldastöðu heimila og einstakra atvinnugreina. Í bændastétt hafa sjónir manna m.a. beinst að kúabændum vegna þeirrar hröðu uppbyggingar sem þar hefur átt sér stað á undanförnum misserum og árum. Vegna umræðunnar og fjölda fyrirspurna ákváðu ráðunautar BSSL sem komið hafa að rekstrarráðgjöf því að taka stöðuna á […]
Eimskip í viðræðum við Vegagerðina um rekstur Herjólfs

Eimskip er nú í viðræðum við Vegagerðina vegna rekstur farþegaferjunnar Herjólfs. Ástæða viðræðnanna eru fyrst og fremst versnandi afkoma í rekstri skipsins, hækkandi olíuverð, kostnaðarsamar viðgerðir og færri farþegar. Þetta staðfesti Guðmundur Pedersen hjá innanlandssviði Eimskips í netpósti. (meira…)
Jólarásin í gang í Vosbúð

Í kvöld hefjast útsendingar Jólarásarinnar sem hefur verið ómissandi í undirbúningi jólahátíðarinnar í Vestmannaeyjum. Jólarásin hefur verið starfandi í fjölda ára síðustu dagana fyrir jólin en útvarpsstöðin verður í ár staðsett í Vosbúð. Dagskrá verður frá klukkan 13 til 23.30 og verða jólalögin allsráðandi. (meira…)
Herjólfur, róður, fundur og Eyjabúð

Það er hálf ótrúlegt að horfa upp á allt þetta sem er að gerast með Herjólf. Stöðugt bilar meira og meira um borð og þetta nýjasta, sem skeði á laugardaginn. Ekki bara að það bilaði önnur vélin og það þurfti að fá viðgerðarmenn um borð til að vinna að viðgerðinni á ferð, heldur bilaði líka […]
Fjórar líkamsárásarkærur.
Fjórar líkamsárásarkærur bárust lögreglu í vikunni. Ekki var um að ræða alvarlega áverka en í einu tilvikinu var árásarmaður með hníf að vopni þó hann hafi ekki beitt hnífnum. Það atvik átti sér stað aðfaranótt laugardags í sumarbústað við Þingvallavatn. Málin eru öll til meðferðar hjá rannsóknardeild. (meira…)